Íslendingar setja tré fyrr upp nú en áður Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. desember 2014 07:30 Hagnaður af sölu trjánna sem Heiða Ósk selur, rennur að hluta til í sjóði Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Hún segir að margir komi til að styrkja málstaðinn. fréttablaðið/stefán
Jólatréssalan hefur gengið vel fyrir þessi jólin og er langt gengið á lagerinn víða. Heiða Ósk Gísladóttir hefur staðið vaktina í Jólatréssölunni Landakoti. Heiða Ósk segir að flestar stærðir séu uppseldar. Aðspurð segir hún að fólk hafi verið fyrr á ferðinni í ár að kaupa jólatré en í fyrra. Það hafi verið mikið að gera í fyrra. „Mér finnst fólk líka vera að kaupa stærri tré núna,“ segir Heiða Ósk. Kristinn Einarsson í Húsasmiðjunni tekur undir með Heiðu Ósk og segir hann söluna hafa gengið mjög vel. Hann vill þó ekki segja hversu mörg tré hann hefur selt. „Við erum með svipað magn og undanfarin ár,“ segir hann. Kristinn segir fólk fyrr á ferðinni í ár að kaupa tré en oft áður. „Og það er líka fyrr að skreyta. Þetta sjáum við í sölu á jólatrésfótum og skrauti. En hérna áður fyrr skreyttu allir á Þorláksmessu,“ segir Kristinn. Hann telur að þessi breyting sé tilkomin vegna erlendra áhrifa. „Og sérstaklega frá Ameríku. Þar er fólk að skreyta jafnvel bara í upphafi aðventu. Svo kannski finnst fólki bara gott að vera tímanlega í því. Jólatré er náttúrlega gríðarmikið skraut og það er fyrirferðarmikið í stofunni. Fólkið vill bara fá jólastemninguna fyrr,“ segir Kristinn. Hann telur að álíka mikið hafi selst af gervitrjám í ár og í fyrra. Normannsþinurinn sé alltaf vinsælasta lifandi jólatréð. Kristinn tekur einnig undir með Heiðu að fólk kaupi stærri jólatré nú en oft áður. „Stærri jólatré eru að seljast meira en þau gerðu áður fyrr,“ segir hann.
Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira