Messi sló markametið í sigri Barcelona Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 22. nóvember 2014 00:01 Leikmenn Barcelona fagna markametinu vísir/getty
Lionel Messi er markahæsti leikmaður spænsku úrvalsdeildarinnar frá upphafi en hann skoraði þrjú af fimm mörkum Barelona í 5-1 sigri á Sevilla í kvöld. Þegar Messi skoraði fyrsta mark leiksins á 21. mínútu jafnaði hann markamet Telmo Zarra sem skoraði 251 mark í 277 leikjum fyrir Athletic Bilbao á árunum 1940 til 1955. Fyrri hálfleikur var tilþrifalítill og staðan í hálfleik 1-0 en seinni hálfleikur var vægast sagt hressilegur.Jordi Alba varð fyrir því óláni að jafna metin með sjálfsmarki strax á annarri mínútu hálfleiksins og tveimur mínútum síðar hafði Neymar komið Barcelona yfir á ný.Ivan Rakitic fyrrum leikmaður Sevilla jók forystuna í 3-1 á 65. mínútu en þá var komið að Messi að slá markametið og það með stæl. Messi skoraði mark númer 252 í deildinni fyrir Barcelona átján mínútum fyrir leikslok og sex mínútum síðar bætti hann öðru marki við og fullkomnaði þrennuna. Frábær sigur hjá Barcelona sem lyfti sér upp í annað sætið með sigrinum en liðið er tveimur stigum á eftir Real Madrid. Sevilla er í fimmta sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Barcelona þó liðið hafi litið illa út í kvöld. Sevilla átti ekki skot á markið í öllum leiknum fyrir utan þegar Alba sendi boltann í eigið net.
Spænski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sjá meira