Fjárfestingin tvöfalt meiri en áætlað var Óli Kristján Ármannsson skrifar 29. október 2014 07:00 Frá skóflustungu í nóvember 2013 ÞG verktakar byggja Hátæknisetrið í samvinnu við PK arkitekta, Eflu verkfræðistofu og Lagnatækni. Um 400 ársverk verða til á framkvæmdatímanum. Fréttablaðið/GVA
Heildarfjárfesting Alvotech, systurfyrirtækis samheitalyfjafyrirtækisins Alvogen, á sviði líftæknilyfja er tvöfalt hærri en kynnt var í nóvember í fyrra þegar framkvæmdir hófust við nýtt 13 þúsund fermetra Hátæknisetur í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Ástæðan er sögð að ákveðið hafi verið að þróa fleiri lyf en upphaflega hafi verið áætlað. Fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins að á næstu árum nemi fjárfestingin um 500 milljónum evra, eða sem svarar um 75 milljörðum króna. Er þá talin með fjárfesting í fullbúnu húsi fyrir um átta milljarða króna. Stærsti hluti fjárfestingarinnar er hins vegar sagður vegna þróunar- og rannsóknarkostnaðar og klínískra rannsókna. Á næstu mánuðum ræður Alvotech í 50 fyrstu störfin við Hátæknisetrið. „Nú er auglýst eftir 35 háskólamenntuðum Íslendingum með raunvísindabakgrunn og fyrri hluta næsta árs verður ráðningum haldið áfram,“ segir í tilkynningu Alvotech og bætt við að búast megi við að um 200 ný störf verði til í tengslum við starfsemina á næstu árum.Andreas HerrmannUnnið verður að þróun og framleiðslu líftæknilyfja í Hátæknisetrinu. Gert er ráð fyrir að taka húsið í notkun í ársbyrjun 2016. „Sex líftæknilyf eru nú í þróun hjá Alvotech í samvinnu við erlenda samstarfsaðila og fyrstu lyf fyrirtækisins fara á markað árið 2018 þegar einkaleyfi þeirra renna út.“ Haft er eftir Róberti Wessman, stjórnarformanni og stofnanda Alvotech, að ánægjulegt sé að geta byggt upp starfsemi hér á landi. „Alþjóðlegur lyfjamarkaður er á miklum tímamótum um þessar mundir. Mörg af söluhæstu lyfjum heims í dag eru líftæknilyf og fjöldi slíkra lyfja rennur af einkaleyfi á næstu árum. Viðskiptamódel alþjóðlegra samheitalyfjafyrirtækja er að breytast og við viljum vera leiðandi í því ferli,“ segir hann. Þá er haft eftir Andreas Herrmann, forstjóra Alvotech, að árlegt söluverðmæti líftæknilyfja sem renna af einkaleyfi til ársins 2020 sé um 100 milljarðar Bandaríkjadala. „Það er því eftir miklu að slægjast. Við stefnum að því að vera í hópi fyrstu fyrirtækja á markað með okkar lyf þegar einkaleyfi renna út árið 2018 og síðar.“
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira