Berst áfram fyrir börnin 29. október 2014 07:00 Ásta Gunnlaugsdóttir þarf að afhenda börn sín tvö til Bandaríkjanna samkvæmt dómi Hæstaréttar. Vísir/Stefán „
Ég ætla bara að berjast þangað til ég verð dregin út. Það er í raun og veru ekkert annað sem ég get gert. Ég er að reyna að komast frá þessum manni og ég ætla ekkert bara að gefast upp,“ segir Ásta Gunnlaugsdóttir, sem var í gær gert af Hæstarétti að afhenda börn sín tvö föður þeirra í Bandaríkjum. Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjaness sem áður hafði áður úrskurðað að það myndi stefna andlegri heilsu þeirra í hættu að vera tekin úr umsjá móður þeirra. Þarf Ásta að snúa aftur í fyrrverandi heimabæ sinn í Poulsbo, Washington, innan tveggja mánaða.Dómur vegna barnakláms Eiginmaður Ástu sem er Bandaríkjamaður og er 20 árum eldri en hún, hlaut dóm fyrir vörslu barnakláms hér á landi skömmu áður en þau kynntust árið 2006. Þá hafði hann búið hérlendis í tíu ár. Þau fluttu út til Bandaríkjanna 2007 þar sem Ásta varð fyrirvinna þeirra þrátt fyrir að vera ekki með atvinnuleyfi þar ytra þar til að þau stofnuðu ísverksmiðju árið 2010. Hæstiréttur taldi að þar sem eiginmaður Ástu sagðist getað útvegað henni vinnuvísa í gegnum fyrirtæki þeirra, þar sem hún gæti unnið á meðan mál þeirra færi fyrir dóm, gæti hún snúið aftur til Bandaríkjanna. „Eins og það sé einhver lausn á vandanum að ég þurfi að fara að vinna hjá manninum sem ég stend í forræðisdeilu við og hefur haldið mér í nokkurs konar ánauð í sjö ár. Ég verði aftur algjörlega upp á hann kominn. Mér finnst það ótrúlegt.“Algjörlega einangruð Ásta segir að hún og börnin sem eru tveggja og fjögurra ára gömul hafi búið við óviðunandi aðstæður og hún óttist nú um velferð þeirra. Þau hafi búið við bág kjör og afar slæman húsakost þar sem þau notuðust við eldivið til að kynda húsið. Hún hafi í raun ekki áttað sig á aðstæðunum sem hún var í fyrr en hún kom heim til Íslands í apríl síðastliðnum í von um að fá lán til að setja í rekstur fyrirtækisins. Þá hafi runnið upp fyrir henni ljós að hún hafði lifað við aðstæður sem væru með öllu óboðlegar. „Ég var algjörlega einangruð og upp á hann komin. Hann skammtaði mér peningana og stjórnaði algjörlega við hvern ég talaði og hvað ég gerði. Ég sá um börnin, heimilið og bar þungann af rekstri og framleiðslu fyrirtækisins okkar. Það var mjög erfitt. Stundum var ég með annað barnið á bakinu og hitt framan á mér á meðan ég vann. Ég var hætt að hugsa um sjálfa mig og allt sem sneri að mér mætti afgangi þar sem ég þurfti að komast yfir svo margt. Ég var í rauninni eins og nokkurs konar þræll. Þegar ég kom heim og gat allt í einu hringt í vinkonur mínar og gert það sem mig langaði án þess að hann gæfi mér leyfi áttaði ég mig á því að ég gat ekki farið aftur út. Ég gat ekki boðið börnunum mínum upp á þetta.“Börnin bera skaðann Hún segir börnin sín hafa borið skaða af þessum aðstæðum þar sem velferð þeirra hafi alltaf lotið í lægra haldi fyrir hagsmunum fyrirtækisins. Stelpan, sem er fjögurra ára, hafi alist upp við mikla streitu og hafi ekki þroskast eðlilega. Hún segir stelpuna hafa tekið miklum framförum eftir að þau komu til Íslands þar sem hún er núna í leikskóla og fær stuðning. „Það var ekki pláss í hennar lífi til þess að þroskast. Þau voru alltaf með mér í vinnunni og þurftu bara að hafa ofan af fyrir sér sjálf. Þriggja ára gat hún sagt þrjátíu orð. Það var alveg sama þótt þau væru veik eða sofnuð þegar honum datt í hug að það þyrfti að fara niður í verksmiðju að kvöldi til. Þá þurfti maður bara að vekja þau og taka þau með. Ég áttaði mig ekki á þessu þar sem maður hugsaði alltaf bara um næsta skref og svo næsta skref því ef maður leyfði sér að hugsa fram í tímann bugaðist maður.“Ætlar ekki að gefast upp Þegar Ásta er spurð hvernig henni líði eftir að Hæstiréttur kvað upp sinn dóm og henni var gert að fara út með börnin, segir hún að hún sé ekki farin að meðtaka niðurstöðuna eða átta sig á hvað tekur við. „Ég skil ekki hvernig Hæstiréttur komst að þessari niðurstöðu og trúi ekki að mér sé gert að snúa aftur í þessar aðstæður með börnin. En ég ætla ekki að gefast upp og mun berjast áfram með það að leiðarljósi að búa börnum mínum gott líf þar sem þau finna fyrir öryggi og ást.“
Tengdar fréttir Gert að senda börnin sín til Bandaríkjanna Konan telur að það gæti skaðað andlega og líkamlega heilsu barnanna að senda þau til föður síns.Undir það tekur sálfræðingur sem leiddur var fyrir héraðsdóm. 28. október 2014 13:17 Mest lesið Búningsklefar minna á fatagám: „Þetta mun aldrei breytast, því miður“ Innlent Á leið til Suður-Afríku með syni sína í meðferð vegna úrræðaleysis Innlent Umferð stýrt eftir að ekið var á grindverk á Austurvegi Innlent Leigubílstjóri grunaður um stórfellda líkamsárás rekinn Innlent Farþegi á bak og burt þegar björgunaraðilar mættu Innlent Nýkjörinn bæjarstjóri alvarlega særður eftir stunguárás Erlent Óánægja með stjórnarandstöðu í hæstu hæðum Innlent Diljá hlustaði á Bítið með tárin í augunum Innlent Ekki áfellisdómur yfir kerfinu að farið sé með börn í meðferð í Suður-Afríku Innlent Þriðjungur telur sumarfrí grunnskólabarna of langt Innlent Fleiri fréttir Stofna hreyfingu til undirbúnings íslensks hers Fólk hvatt til að setjast og spjalla á spjallbekknum Diljá hlustaði á Bítið með tárin í augunum Kyngreint nautasæði kemur vel út Samþykkt að kortleggja eignarhald sjávarútvegsfyrirtækja „Þýðir ekki bara að moka yfir hlutina“ Segir stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri grafalvarlega „Það þarf að gera meira og hraðar“ Ekki áfellisdómur yfir kerfinu að farið sé með börn í meðferð í Suður-Afríku Snjór í Esjunni en ekki víst að hann festist Farþegi á bak og burt þegar björgunaraðilar mættu „Munum fagna þegar riðu hefur verið útrýmt á Íslandi“ „Ekki svo að allir bændur séu að kvarta“ Tvö ár liðin frá árásum Hamas og alvarlegt rútuslys á Snæfellsnesi Vilja heimili á markað en ekki uppboð við nauðungarsölu Þriðjungur telur sumarfrí grunnskólabarna of langt Óánægja með stjórnarandstöðu í hæstu hæðum Mótmæla við ríkisstjórnarfund og kalla eftir aðgerðum Á leið til Suður-Afríku með syni sína í meðferð vegna úrræðaleysis Umferð stýrt eftir að ekið var á grindverk á Austurvegi Skorið á hjólbarða og spreyjað á bifreiðar Búningsklefar minna á fatagám: „Þetta mun aldrei breytast, því miður“ Leigubílstjóri grunaður um stórfellda líkamsárás rekinn Telja að eitt prósent þjóðarinnar sé haldið barnagirnd Maður dvaldi í Alþingishúsinu yfir nótt Vilja að Reykjavík lögsæki ríkið „Við viljum bara grípa þau fyrr“ Risaskuld, nýr flokkur og áheyrnarprufur hunda Enginn slasaðist alvarlega þegar rútu hvolfdi á Snæfellsnesi Rúða brotin og flugeld kastað inn Sjá meira
Gert að senda börnin sín til Bandaríkjanna Konan telur að það gæti skaðað andlega og líkamlega heilsu barnanna að senda þau til föður síns.Undir það tekur sálfræðingur sem leiddur var fyrir héraðsdóm. 28. október 2014 13:17