Áhrif framleiðslunnar á umhverfið óveruleg Óli Kristján Ármannsson skrifar 25. júlí 2014 07:00 Á Grundartanga á að rísa fyrirhuguð verksmiðja Silicor Materials. Fréttablaðið/GVA
Bent hefur verið á að veruleg mengun hafi fylgt framleiðslu sólarkísils. Í grein sem Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur ritar á vef sinn bendir hann á að slíkri framleiðslu hafi fylgt mikil losun á eiturefninu sílikontetraklóríði auk þess sem klórgas berist í miklu magni út í andrúmsloftið. Bandaríska fyrirtækið Silicor Materials ætlar í haust að hefja byggingu 19 þúsund tonna sólarkísilverksmiðju á Grundartanga og á starfsemi að hefjast þar árið 2017. „Er ef til vill búið að afskrifa Hvalfjörð og Akranes, og dæma þetta svæði sem iðnaðarhverfi, þar sem mengun er leyfileg?“ spyr Haraldur í umfjöllun á vef sínum. Á vef Silicor Materials kemur hins vegar fram að fyrirtækið hafi einkaleyfi á nýrri framleiðsluaðferð sem ekki hafi í för með sér slíka mengun. Bráðið ál er notað til að hreinsa kísilmálminn og síðan selt aftur í áliðnað. Þá var það mat Skipulagsstofnunar í apríllok á þessu ári að „hreinsun kísilmálms til framleiðslu á sólarkísli á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.“ Mengun sem berist frá starfseminni til andrúmsloftsins sé ryk samkvæmt fyrirliggjandi gögnum um magn þess og samsetningu verði áhrif af völdum þess óveruleg.
Mest lesið Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Sjá meira