Leikstýrir í fyrsta sinn í Los Angeles Gunnar Leó Pálsson skrifar 16. júlí 2014 10:30 Þarna er Jökull Ernir Jónsson, annar frá hægri, ásamt nokkrum samstarfsfélögum sínum þegar sýningin var kynnt á Fringe-hátíðinni. Stúlkan á milli Jökuls og Péturs Pan er hins vegar Mercedes Schelba-Shorte úr America's Next Top Model en hún er systir trommarans í hljómsveit Jökuls, The Evening Guests. Mynd/Joseph Paul „
Ég hef svo sem ekki hugmynd um af hverju ég var beðinn um að leikstýra söngleiknum en það er líklega út af því að það þekkir enginn sýninguna eins vel og ég,“ segir tónlistarmaðurinn Jökull Ernir Jónsson sem þreytir frumraun sína sem leikstjóri í barnasöngleik um Mjallhvíti í Los Angeles. Sýningin er sett upp af leikfélagi sem kallast The Smiley Face and the Frown Entertainment Group og var sett upp fyrir sýningarhátíð sem kallast The 2014 Hollywood Fringe Festival sem fram fór í Cupcake Theater í Hollywood. „Á hátíðinni voru sýndar um tvö hundruð mismunandi sýningar og um sextíu sýningar fengu svokölluð Fringe Expansion Awards, sem þýðir framlenging á sýningunni þannig að við erum að fara að halda áfram með sýninguna okkar í leikhúsinu sem er ákaflega ánægjulegt,“ útskýrir Jökull Ernir. Hann segir að sýningin hafi gengið mjög vel og uppselt hafi verið á hverja sýningu en hún var frumsýnd í júnímánuði og gekk í þrjár vikur og fer aftur í sýningu í næsta mánuði.Jökull Ernir Jónsson og félagar í stuði á sviði.Mynd/Joseph PaulJökull Ernir kom fyrst að áðurgreindum söngleik fyrir um tveimur árum. „Söngleikurinn var upphaflega settur upp af leikhópnum Lottu á Íslandi og fjallar um ævintýri Mjallhvítar en það er þó meira stuðst við Grimms-útgáfuna heldur en Disney. Anna Bergljót Thorarensen skrifaði söngleikinn. Fyrir tveimur árum bað vinkona mín og meðlimur leikhópsins Lottu, Andrea Ösp Karlsdóttir, mig um að aðstoða sig við að þýða söngleikinn. Hún var í leikfélaginu The Smiley Face and the Frown Entertainment Group og var söngleikurinn settur upp fyrir tveimur árum en þá skipaði ég stöðu tónlistarstjóra,“ segir Jökull Ernir spurður út í upphafið. Þegar söngleikurinn var settur upp í Los Angeles fyrir tveimur árum var flogið sérstaklega með Önnu Bergljótu til Los Angeles til þess að leikstýra uppfærslunni. Jökull Ernir, sem meðal annars samdi nýja tónlist við söngleikinn, útskrifaðist úr tónlistarskólanum Musicians Institute undir lok ársins 2012. Hann er með nóg af verkefnum á sínum snærum og er meðal annars að semja nýjan söngleik með leikfélaginu, ásamt því að koma fram með hljómsveitinni sinni The Evening Guests, sem vakið hefur talsverða lukku vestanhafs. Leikfélagið The Smiley Face and the Frown Entertainment Group var stofnað árið 2011 en einn af stofnendum þess er leikkonan Andrea Ösp Karlsdóttir. Markmið félagsins er að útvega skapandi listamönnum fagmannlegt atvinnuumhverfi í Los Angeles og næsta nágrenni. Félagið útvegar listamönnum grunnfjármagn til að hjálpa til við að leyfa verkefnum að líta dagsins ljós en stjórn félagsins ákveður hvaða verkefni fá fjármagn hverju sinni.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Fleiri fréttir Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjá meira