Skipstjóri sökkvandi ferju kom sér snemma frá borði Brjánn Jónasson skrifar 19. apríl 2014 06:45 Ættingjar þeirra sem fórust með ferjunni og þeirra sem enn er saknað syrgja börn sín og ættingja. Nordicphotos/AFP
Mögulegt er að fleiri af farþegum suður-kóreskrar farþegaferju sem hvolfdi á fimmtudagskvöld hefðu bjargast ef skipstjóri ferjunnar hefði gefið fyrirmæli um að yfirgefa skipið fyrr. Lögregla og saksóknari hafa farið fram á það við dómstóla að fá að handtaka skipstjóra ferjunnar og tvo aðra skipverja. Skipstjórinn var ekki í brú skipsins þrátt fyrir að siglt hafi verið á hafsvæði þar sem þess er krafist, lögum samkvæmt. Þá forðaði hann sér snemma frá borði í stað þess að stýra björgunaraðgerðum. „Skipstjórinn forðaði sér frá borði á undan farþegunum,“ segir Yang Jung-jin, saksóknari sem fer með rannsókn málsins. Rannsókn á ástæðum þess að ferjunni hvolfdi miðar lítið, en komið hefur í ljós að hún beygði skarpt rétt fyrir slysið. Ástæða þess að skipið beygði hefur ekki verið gefin upp. Alls voru 476 um borð í ferjunni, flest börn á leið í skólaferðalag. Staðfest hefur verið að 174 komust af, 28 eru látnir og 274 er enn saknað. Einn þeirra sem komust lífs af, aðstoðarskólastjóri sem hafði umsjón með stórum hópi barna á ferjunni, stytti sér aldur í gær. Í sjálfsvígsbréfi hans kom fram að hann gæti ekki afborið að hafa lifað af þegar svo mörg börn í hans umsjá létust. Kafarar leita nú að líkum um borð í skipinu en lélegt skyggni undir yfirborði sjávar torveldar leitina verulega.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira