Máttu ekki miða við núll prósent verðbólgu Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. nóvember 2014 08:21 Mál Sævars gegn Landsbankanum er rekið í Héraðsdómi Reykjavíkur. vísir/vilhelm
Það samrýmist ekki tilskipun Evrópusambandsins að miða samningsskilmála í verðtryggðum lánum við 0% verðbólgu þegar heildarlántökukostnaður og árleg hlutfallstala kostnaðar er reiknað ef þekkt verðbólgustig á lántökudegi er ekki 0%. Þetta segir í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins vegna máls sem Sævar Jón Gunnarsson höfðaði gegn Landsbankanum. Í álitinu segir að það sé íslenskra dómstóla að meta hvaða áhrif röng upplýsingagjöf af þessu tagi hefur og hvaða úrræðum er hægt að beita af því tilefni. Sævar tók verðtryggt 630 þúsund króna lán hjá bankanum 19. nóvember 2008 gegn útgáfu skuldabréfs. Skuldabréfinu fylgdi greiðsluáætlun þar sem fram kemur að áætlunin byggi á 0 prósent verðbólgu, núgildandi vöxtum og gjaldskrá bankans sem geti tekið breytingum. Síðar kom í ljós að greiðslubyrði lánsins reyndist talsvert hærri en ráð var fyrir gert í greiðsluáætluninni, jafnvel þótt hinir breytilegu vextir af láninu hafi lækkað í kjölfar þess að byrjað var að greiða afborganir. Gengið er út frá því að hækkun afborgana umfram greiðsluáætlun hafi orsakast af verðbótauppreikningi lánsins sem hafði þau áhrif að bæði höfuðstóll og vextir hækkuðu umtalsvert. Sævar Jón höfðaði mál gegn Landsbankanum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn taldi vafa leika á því hvernig skýra beri 12. grein laga um neytendalán og hvort heimilt væri, við útreikning heildarlántökukostnaðar neytenda, að miða við 0% verðbólgu og horfa þannig fram hjá þeirri verðbólgu sem er á þeim tíma þegar lánið er tekið. Því var leitað ráðgefandi álits hjá EFTA-dómstólnum vegna túlkunar á tilskipunum nr. 87/102/EBE frá 22. desember 1986 um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi neytendalán. Lán Sævars var verðtryggt neytendalán til fimm ára, en enn á eftir að koma í ljós hvaða fordæmisgefandi áhrif álitið mun hafa. Til dæmis hvaða áhrif hann hefur á fasteignalán. Væntanlega mun það kom í hlut íslenskra dómstóla að meta það.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira