Falleg kveðja frá Verona til Emils vegna andláts föður hans Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. september 2014 08:30 Emil Hallfreðsson er í miklum metum hjá Hellas Verona. vísir/getty
Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, missti föður sinn á dögunum og var þess vegna ekki í leikmannahópi Hellas Verona gegn Torino í ítölsku A-deildinni um helgina. Fram kemur á heimasíðu ítalska liðsins að Andrea Mandorlini, þjálfari Verona, hafi aflýst fréttamannafundi fyrir leik þess gegn Genoa annað kvöld með leyfi félagsins. Þá hefur Verona beðið ítalska knattspyrnusambandið um leyfi fyrir því að leikmenn liðsins megi bera sorgarbönd vegna andláts föður Emils í leiknum annað kvöld. Á heimasíðuna er rituð falleg kveðja til Emils á ítölsku þar sem sagt er að allir hjá félaginu; frá forseta þess til allra annarra starfsmanna, standi með honum í gegnum þessa erfiðu tíma. „Við erum með þér, Emil. Þessar fréttir eru skelfilegar fyrir fjölskyldu þína - okkar fjölskyldu - sem þekkir þig svo vel. Skyndilegt fráfall föður þíns, Hallfreðs, fær hjörtu okkar til að bresta. Það eru engin orð sem fá þessu lýst - allt virðist meiningarlaust. Við erum með þér, Emil. Við viljum að þú finnur fyrir ást okkar og styrk í þínu hjarta. Það standa allir með þér; forseti félagsins og allir starfsmenn þess. Við stöndum með þér og fjölskyldu þinni.“Öll kveðjan á ítölsku.
Fótbolti Mest lesið Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Fótbolti Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Ítalía kom til baka gegn Albaníu Fótbolti Skotar yfirtaka München: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ Fótbolti Ekkert verður af endurkomu McGregor í búrið Sport Ætla ellefu sinnum upp Esjuna og safna áheitum Sport „Ég er ekki stoltur af þessu“ Íslenski boltinn Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Fótbolti Öruggur heimasigur og sex mörk skoruð í opnunarleik EM Fótbolti Spánverjar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Ítalía kom til baka gegn Albaníu Spánverjar skoruðu mörkin Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Uppgjör: Stjarnan – Þór/KA 1-4 | Sandra María hættir ekki að skora Spánverjar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Sjáðu mörkin: Sviss byrjar af krafti „Það er erfitt að koma hingað og sækja stig“ Uppgjör: FH varði forskotið og tók öll stigin Emilía Kiær danskur meistari með Nordsjælland Öruggur sigur Sviss í fyrsta leik Brjálað stuð og blíða á pæjumótinu Cole Palmer skapaði óvart jarmveislu á Twitter Vistaskipti Ísaks til Düsseldorf staðfest formlega Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Spánverjar missa miðvörð í meiðsli fyrir fyrsta leik Lallana snýr aftur til Southampton Yngsti þjálfarinn stýrði stærsta opnunarsigri í sögu EM Sir Alex og Mourinho sátu saman á opnunarleik EM Öruggur heimasigur og sex mörk skoruð í opnunarleik EM Goðsögn kveður Dortmund Mættur á EM eftir að hafa gengið frá Glasgow til München Stórskotalið var á blaðamannafundi Vals Frábær umgjörð hjá kvennaliði Fylkis Everton vill fá 80 milljónir punda fyrir Branthwaite Skotar yfirtaka München: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ Sjá meira