
Eru kröfur framhaldsskólakennara ósanngjarnar?
Þar sem ég er að kenna tungumál hef ég ákveðið svigrúm til þess að tengja kennsluna við mjög margt sem mér þykir sjálfri skemmtilegt.
Þetta tel ég vera lykilatriði í því að geta miðlað námsefninu á jákvæðan hátt til nemenda minna. Þannig reyni ég að kynna fyrir nemendum menningu landsins á bak við tungumálið. Mín reynsla er sú að þegar nemendur kveikja á þessu, er yfirleitt ekki aftur snúið og þeir læra þá oftar en ella sjálfviljugir.
Það er eitt af markmiðum tungumálakennslunnar að miðla áfram til nemenda þeim brunni af spennandi dægradvöl sem tungumálið getur verið, hvort sem um er að ræða bókmenntir, tónlist, matargerð, kvikmyndir, sögu eða einfaldlega nýjustu fréttum af menningarsvæði tungumálsins.
Fagið sem ég vinn við er þýska og er yfirleitt með mér á öllum tímum sólarhringsins þar sem ég er sífellt í leit að nýjum hugmyndum til þess að vinna með í kennslustundum. Sem dæmi má nefna fylgist ég gjarnan með þýskum fréttum og ýmsu sjónvarpsefni í þýska sjónvarpinu utan vinnutíma. Ég hlusta einnig töluvert á þýska tónlist og á orðið í gegnum starf mitt nokkuð þéttan vina- og kunningjahóp á þýskumælandi málsvæðum.
Sumarfríin nýti ég gjarnan til þess að sækja ráðstefnur- og námskeið og finnst það ómissandi þáttur í faginu. Þannig kynnist ég því sem er nýjast á döfinni í bransanum og fæ tækifæri til þess að skiptast á hugmyndum og bera saman skólastarfið við kollega mína sem koma hvaðanæfa að úr heiminum.
Eftir hinn hefðbundna kennsludag fyrir framan marga mismunandi hópa á ólíkum stigum bíður kennarans yfirferð prófa- og verkefna, fyrir utan þá vinnu við að undirbúa námsefni næsta skóladags, lokaskipulagningu þeirrar kennsluviku sem framundan er og framkvæmd alls kyns annarra verkefna sem dúkka upp tengdu faginu eða skólastarfinu. Þar fyrir utan eru ýmsir viðburðir og keppnir í fögunum sem kennarar þurfa einnig að stýra og halda utan um.
Frá því að ég byrjaði að kenna í framhaldsskóla árið 2007 hef ég unnið nánast hverja helgi við undirbúning eða yfirferð verkefna fyrir utan kvöldvinnu í hverri viku sem er óhjákvæmileg til þess að öll markmið kennslunnar náist. Þetta er ekkert einsdæmi því svona vinnuálag er lýsandi fyrir flesta þá sem sinna þessum störfum.
Í þessu samhengi og í ljósi þess verkfalls sem nú er skollið á í framhaldsskólunum finnst mér óhjákvæmilegt að ráðamenn spyrji sig að því hvort ekki sé nauðsynlegt að kennarar séu þokkalega sáttir við kaup sín og kjör. Eins þykir mér gríðarlega mikilvægt að skilningur aukist á því almennt í hverju kennarastarfið felst.
Mikið hefur verið rætt um frítíma kennara og augljóst að það ríkir talsvert þekkingarleysi á starfinu. Yfirferð ritgerða, verkefna og prófa er stór þáttur sem kennari þarf að standa skil á og því ekki gæfulegt að vanmeta þann tíma sem í það fer.
Markmiðin í kennslunni eru eins og gefur að skilja ótalmörg og mismunandi þannig að kennarinn þarf stöðugt að halda mörgum boltum á lofti í einu. Álagið er því mjög mikið og í rauninni nokkuð jafnt yfir allt árið. Ég held að enginn sem ekki hefur kennt í a.m.k. eitt skólaár, geti raunverulega skilið eðli starfsins og því hlýtur rödd kennara að skipta sköpum í því að skipuleggja námskrá framhaldsskólanna.
Þegar kennari hefur ákveðið svigrúm til þess að vinna starf sitt samviskusamlega eykst sköpunargleðin í starfinu og hann er ekki niðurnjörfaður í eitthvert ferkantað ytra skipulag sem hindrar hann í að útfæra hugmyndir sínar inni í kennslustofunni.
Að mínu mati er þess vegna nauðsynlegt að kennarar geti, án þess að vera þjakaðir af fjárhagsáhyggjum, unnið störf sín á þeim tíma sem þeim hentar best til undirbúnings og áætlanagerða fyrir bekki sína. Ég tel að laun kennara skipti einnig miklu máli í þessu samhengi og þeir þurfa a.m.k. að njóta sambærilegra launa við aðrar háskólamenntaðar stéttir.
Það hlýtur að skjóta skökku við þegar kennarar geta fengið hærri laun við að smyrja samlokur sem verkefnisstjórar á skyndibitastöðum en við kennslu í framhaldsskólum eftir fimm ára háskólanám, oftast með byrði námslána á bakinu.
Einn kunningi minn tjáði mér að með mína menntun gæti ég fengið starf, sem í eðli sínu væri svipað og kennsla hjá þekktu þekkingar- og ráðgjafafyrirtæki og fengið fyrir það u.þ.b. þrisvar sinnum hærri tekjur en í fullu starfi sem framhaldsskólakennari.
Þegar staðan er svona er því mjög hætt við því að vel menntaðir og hæfir kennarar leiti á önnur mið. Kröfur framhaldsskólakennara snúast alls ekki um einhver ofurlaun heldur einfaldlega um vera mannsæmandi fyrir þá miklu vinnu sem kennarar inna af hendi.
Lesendur Vísis geta sent inn greinar á ritstjorn@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi.
Skoðun

Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna
Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar

Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi!
Rakel Ýr Isaksen skrifar

Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar
Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar

Samkeppnin tryggir hag neytenda
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Stóðhryssur ekki moldvörpur
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Við getum gert betur
Einar Bárðarson skrifar

Tími til að notast við réttar tölur
Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur?
Valur Elli Valsson skrifar

Ábyrg stefna í útlendingamálum
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Týndu hermennirnir okkar
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Gerist þetta aftur á morgun?
Ísak Hilmarsson skrifar

Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu?
Helen Ólafsdóttir skrifar

Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar
Jón Daníelsson skrifar

Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Fréttir af baggavélum og lömbum
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Auglýsingaskrum Landsvirkjunar
Stefán Georgsson skrifar

Öryggi og varnir Íslands
Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar

Takk Trump!
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar
Soffía Sigurðardóttir skrifar

Tími til að staldra við
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Hvar er fyrirsjáanleikinn, forsætisráðherra?
Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar

25 metrar í Fannborg
Hákon Gunnarsson skrifar

Krossferðir - Íslamófóbía - Palestína
Kristján Þór Sigurðsson skrifar

Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik
Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar

Frumvarp til ólaga
Jón Ásgeir Sigurvinsson skrifar

Hervirki í höfuðborg - Svefngenglar við stjórnvölinn
Örn Sigurðsson skrifar

„Drifkraftur að óöryggi og óvissu“
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Klerkaveldi, trú og stjórnmál
Sigurður Árni Þórðarson skrifar