Í Batman-buxum í þingsal Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. desember 2014 21:46 Batman-buxur Katrínar Jakobsdóttur sem eldri synir hennar völdu fyrir hana. Mynd/Svandís Svavarsdóttir „
Kannski er forseti þingsins bara mikill aðdáandi ofurhetjunnar eða aðdáandi mín,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, létt í bragði þegar hún er spurð út í Batman-buxurnar sem hún hefur skartað í þingsal í dag. Eins og kunnugt er gilda strangar reglur um klæðaburð í þingsal og hafa þingmenn til að mynda verið reknir úr gallabuxum og lopapeysum, eins og Katrín sjálf lenti í þegar hún var menntamálaráðherra. „Ég fór nú í þessar buxur í morgun af því að það var kalt og ætlaði svo að fara úr þeim en þá fékk ég áskorun um að vera í þeim í þingsal. Ég gat ekki annað en tekið þeirri áskorun.“ Hún segir að það sé alveg eins líklegt að forseti þingsins, Einar K. Guðfinnsson, hafi einfaldlega ekki tekið eftir því að hún væri í Batman-buxum. „Svo les hann um þetta í fjölmiðlum og fær bara áfall,“ segir Katrín hlæjandi.
Alþingi Tengdar fréttir Menntamálaráðherra rekinn úr vestfirskri lopapeysu á Alþingi "Þetta voru nú vinsamleg tilmæli, en maður hlýðir alltaf forsetanum,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, sem var rekin úr lopapeysu sem hún var klædd í á Alþingi í dag. Það þótti ekki við hæfi að vera klæddur í lopapeysu á Alþingi í dag að mati forseta Alþingis. 19. desember 2012 20:57 Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Sjá meira
Menntamálaráðherra rekinn úr vestfirskri lopapeysu á Alþingi "Þetta voru nú vinsamleg tilmæli, en maður hlýðir alltaf forsetanum,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, sem var rekin úr lopapeysu sem hún var klædd í á Alþingi í dag. Það þótti ekki við hæfi að vera klæddur í lopapeysu á Alþingi í dag að mati forseta Alþingis. 19. desember 2012 20:57