Tiger átta höggum á eftir forystusauðnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. janúar 2014 08:30 Tiger Woods á Torrey Pines í gærkvöldi. Vísir/AFP
Bandaríkjamaðurinn Stewart Cink var í banastuði á fyrsta degi Farmers Insurance mótsins í golfi á Torrey Pines vellinum í Kaliforníu í gær. Cink lék fyrsta hringinn á 64 höggum eða heilum átta höggum undir pari vallarins. Hann leiðir þó aðeins með einu höggi þar sem landi hans, Gary Woodland, nældi í örn auk fimm fugla og er á 65 höggum.Tiger Woods, sem hefur átta sinnum unnið sigur á Torrey Pines, lauk leik í gær á 72 höggum sem er par vallarins. Hann nældi í fugl strax á annarri holu en náði aðeins einum fugli í viðbót til að jafna út tvo skolla á holunum átján.Leik verður framhaldið í dag en bein útsending frá mótinu er á Golfstöðinni. Útsendingin í kvöld hefst klukkan 20.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira