Lögreglumenntun á háskólastigi Eyrún Eyþórsdóttir skrifar 1. október 2014 07:00 Alþingi samþykkti á vordögum frumvarp til breytingar á lögreglulögum og var þar farið fram á endurskoðun á skipulagi og starfsemi Lögregluskólans. Á meðan beðið er eftir skýrslu starfshópsins sem fenginn var til verksins er gott að fjalla stuttlega um hvað málið varðar.Barn síns tíma Lögregluskólinn er eyland sem hefur staðið utan menntakerfisins og ekki lotið neins konar eftirliti eða krafna varðandi gæði. Námið hefur verið metið til eininga á framhaldsskólastigi þó svo þær einingar hafi illa fengist metnar inn í aðra skóla. Fastráðnir kennarar skólans eru ekki með námslegan bakgrunn eða starfsréttindi til kennslu og þar er ekki að finna faglegt námsefni. Helstu aðgangskröfurnar eru að hafa lokið tveimur árum í framhaldskóla, vera orðinn tuttugu ára og geta í íslensku og þreki er metin. Kröfurnar útiloka hóp fólks frá lögreglunáminu, t.d. lesblinda, innflytjendur sem hafa ekki náð fullum tökum á íslensku og fatlaða. Þá hefur Lögregluskólinn, eðli málsins samkvæmt, ekki staðið við lögskipað hlutverk sitt sem fræða- og rannsóknarsetur þar sem ekki hefur verið lögð áhersla á að nýta háskólamenntun sem lögreglumenn hafa aflað sér né hefur skólinn haft yfir akademískri þekkingu að ráða.Aukin menntun lögreglumanna Undanfarin ár hafa hugmyndir fólks gagnvart menntun lögreglunnar breyst samfara hröðum þjóðfélagslegum og hnattrænum breytingum. Til dæmis fyrirfinnast ekki lengur landamæri þegar kemur að glæpastarfsemi, net- og tölvuheimurinn er orðinn svo flókinn að það er ekki fyrir leikmenn að skilja, kynferðisofbeldi er undir áhrifum klámvæðingar, glæpir eru skipulagðari, fíkniefnaframleiðsla hefur fest rætur hérlendis og fólk er orðið að söluvöru. Fjölbreytni í trúarbrögðum hefur aukist, fjölmenning er meiri, lífsviðhorf fólks til kyns, uppruna, kynhneigðar og fleira hefur breyst. Og meðvitund fólks um eigin borgaraleg réttindi hefur aukist. Allt kallar þetta á aukna sérhæfingu lögreglufólks auk þess sem lögreglan þarf ekki aðeins að hafa fullan skilning á fjölbreytileikanum heldur einnig endurspegla hann. Nokkur lögregluembætti og deildir hafa ráðið til sín háskólamenntað fólk í sérhæfð verkefni. Það má álíta að það sé gert vegna þess að talið er að lögreglumenntun dugi ekki til að mæta þeirri sérhæfingu sem þarf. Líklega gekk sjónarmið sérstaks saksóknara út á það að þekking meðal lögreglumanna væri ekki til staðar þegar kom að flóknum fjármálagjörningum og því réði hann fólk með viðskiptafræðimenntun. Þá má spyrja af hverju þetta sjónarmið er ekki uppi þegar kemur að öðrum málaflokkum. Af hverju er ekki ráðnir tölvunarfræðingar þegar kemur að tölvurannsóknum eða sérfræðingum í kynbundnu ofbeldi þegar kemur að rannsóknum á kynferðisbrotum. Í nútímasamfélagi er háskólamenntun orðin almennari og meiri kröfur eru gerðar til fólks á vinnumarkaðinum. Kröfur til lögreglunnar eiga ekki að vera minni en kröfur til annarra hópa – heldur frekar á hinn veginn. Á ráðstefnu sem Landssamband lögreglumanna stóð fyrir árið 2013 um menntun lögreglumanna kom fram að Lögregluskólinn standi langt að baki lögregluskólum annarra norrænna ríkja þar sem lögreglunám er komið á háskólastig. Þar er ekki lengur til umræðu hvort nám eigi að vera á háskólastigi heldur uppbygging mastersnáms og jafnvel doktorsnámi skólanna.Lögreglunámið í Háskóla Íslands Lögreglunámið gæti verið þverfaglegt grunnnám í Háskóla Íslands þar sem inngangskrafan væri stúdentspróf. Háskólinn býður upp á nám í lögfræði og félagsvísindum sem ættu að vera grunnstoðir lögreglunáms. Auk þess væri hægt að taka ýmiss konar námskeið svo sem tölvunarfræði, efnafræði, viðskiptafræði og sálfræði sem mundi efla sameiginlegan þekkingargrunn lögreglumanna og verða til þess að fjölbreyttari hópur fólks menntaði sig á þessu sviði. Líkt og annað verktengt háskólanám gæti starfsnám lögreglu farið fram undir hatti háskólans. Þá þyrfti að vera hægt að fá sérhæfingu eftir grunnnámið, hvort sem það væri í sakamálarannsóknum eða til stjórnunarstarfa.Samfélagslegt mál Menntun lögreglumanna hefur sjaldan verði hluti af þjóðfélagslegri umræðu en er engu að síður samfélagsleg málefni. Lögreglan á Íslandi stendur sig yfirleitt með sóma en samfélagið breytist ört og samfara því vinnuumhverfi lögreglumanna. Aukin menntun er mikilvæg fyrir lögreglumenn til að auka færni sína, þekkingu og getu. Þannig geta þeir skilað faglegra starfi og orðið reiðubúnir til að mæta áskorunum framtíðarinnar og ekki síst þjónustu við samfélag sitt. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr. Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Skoðun Auðkenni þarf að passa upp á Eva Valdís Jóhönnudóttir skrifar Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er besti skólastjórinn? Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar