Telur byggðastefnu ríkisstjórnar skaðræði Jakob Bjarnar skrifar 1. október 2014 11:19 Eygló og Sigríður Ingibjörg sem segir ekki vænlegt til eflingar byggðar að flytja eina og eina stofnun út á land en það dragi hins vegar úr gæðum stjórnsýslunnar.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, furðar sig á þeim hugmyndum ráðherra að vilja flytja yfirstjórn barnaverndarmála og réttindagæslu fatlaðra út á land. Fréttablaðið greinir í dag frá þessum áformumEyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra að vilja flytja málefni Barnaverndarstofu, Fjölmenningarseturs og réttargæslumanna fatlaðs fólks út á landsbyggðina. Eygló vísar til stjórnarsáttmálans, þar sem kveðið er á um mikilvægi þess að flytja opinber störf út á land.Sigríður Ingibjörg spyr hvort Eygló hafi velt því fyrir sér hvernig standi á því að LÍÚ, Samtök atvinnulífsins og Bændasamtökin eru með skrifstofur sínar í Reykjavík? Sigríður gagnrýnir þessar hugmyndir ríkisstjórnarinnar harðlega. „Þær skjóta skökku við. Því það er náttúrlega þannig að allar stofnanir, eða samtök sem eru að fást við ákveðna tegund hagsmunagæslu eða stjórnsýslu, vilja vera í nálægð við ýmsa aðra starfsemi. Þetta er lykilatriði: Megnið af sérfræðiþekkingu sem þarf, til dæmis til að sinna réttindagæslu og barnaverndarmálum, sérfræðingar í þessum málum eru á höfuðborgarsvæðinu.“ Sigríður segir að byggðastefnu ríkisstjórnarinnar skaðræði, þó hún leggi ríka áherslu á mikilvægi byggðastefnu. „Byggðastefna er mjög mikilvæg, sem þá horfir til þróunar heilu svæðanna og hvað sé gott til að mannlíf blómstri þar og atvinnumöguleikar og ýmis lífsgæði séu til staðar. En að taka eina og eina stofnun og flytja út á land er ekki leiðin til að efla byggð á Íslandi en dregur hins vegar úr gæðum stjórnsýslunnar.“ Sigríður Ingibjörg gerir ráð fyrir því að hart verði tekist á um þetta mál á þinginu.
Mest lesið Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Innlent „Þessi kostnaður hverfur ekki“ Innlent Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá Innlent Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Erlent Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Erlent Skemmdarverk unnin á lögreglubílum Innlent Vilja skoða að gera RÚV aftur að hefðbundinni ríkisstofnun Innlent Inga vill helst fjármálaráðuneytið Innlent Ráðherra hafi ekki mátt láta rannsaka meðferðarheimilið Innlent Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Erlent Fleiri fréttir Kosningastjóri og áhrifavaldur aðstoða Bjarkeyju Inga vill helst fjármálaráðuneytið Skemmdarverk unnin á lögreglubílum Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Vilja skoða að gera RÚV aftur að hefðbundinni ríkisstofnun Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá „Þessi kostnaður hverfur ekki“ Þrettán ungliðahreyfingar fordæma breytingar á útlendingalögum Til skoðunar að færa Grindavíkurveg vestar Spáir sól um allt land í vikunni 800 nýjar íbúðir byggðar á Ásbrú Fjárlaganefnd leggur til opnun sendiráðs á Spáni Ráðherra hafi ekki mátt láta rannsaka meðferðarheimilið Efast um heimild ráðherra til rannsóknar Rænulaus maður á almannafæri reyndist ferðamaður í sólbaði Stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa Kynna nýtt kerfi veiðistjórnunar Segir magnafslátt á umhverfissóðaskap skelfilega hugmynd Nefnir legókeppni sem mögulegt ráð við vanda drengja Unnið á spítalanum lengi en óttast ekki hagsmunaárekstra Úr sex nöfnum að velja á nýjasta sveitarfélag landsins Reglur um samskipti við fjölmiðla ekki tilraun til þöggunar Krefur úrskurðarnefnd upplýsingamála um upplýsingar Líta fjölda látinna í umferðinni alvarlegum augum Almannahagsmunir að slíkar upplýsingar séu opinberar Hófu frumkvæðisathugun á netsölu áfengis í morgun Loksins kominn heim eftir slysið á Íslandi sem umturnaði lífi hans Fjósalykt leggst yfir Seyðisfjörð Þrjár íkveikjur í sinu með jöfnu millibili Áhyggjurnar enn til staðar og engin trygging Sjá meira