Ofurhetjumynd í gömlum stíl 31. júlí 2014 19:00 Myndin er pakkfull af áhættuatriðum eins og sannri ofurhetjumynd sæmir. mynd/einkasafn
Nýjasta mynd myndasögurisans Marvel og Disney er frumsýnd í kvöld en hún ber nafnið Guardians of the Galaxy og er byggð á samnefndum myndasögum frá sjötta áratugnum.Chris Pratt fer með aðalhlutverkið í myndinni en hann leikur sjálftitluðu ofurhetjuna Star-Lord. Með fleiri hlutverk í myndinni fara til dæmis stórstjörnurnar Bradley Cooper og Vin Diesel. Guardians of the Galaxy-teymið kom mönnum fyrst fyrir sjónir í teiknimyndablaði sem Marvel gaf út í janúar árið 1969. Að vísu var ekki um nákvæmlega sama teymi að ræða og í dag, en núverandi teymi sást fyrst í teiknimyndablaði árið 2008. Sumir hafa haft orð á því að ofurhetjurnar sem þar eiga sviðið séu nokkurs konar geimútgáfur af The Avengers-ofurhetjunum. Leikarinn Chris Pratt leiðir hópinn sem Star-Lord en í hópnum eru einnig hin græna Gamora, sem Zoe Saldana leikur, drumburinn Groot, sem leikinn er af Vin Diesel, Drax the Destroyer, sem Dave Bautista leikur, og litla dýrið Rocket, sem Bradley Cooper ljær rödd sína. Í öðrum hlutverkum eru einnig ansi þekktir leikarar en má þar til dæmis nefna Josh Brolin, Glenn Close, Djimon Hounsou, Michael Rooker og Benicio del Toro.James Gunn leikstýrir myndinni en hann hefur áður leikstýrt myndum á borð við Scooby-Doo, Slither og ofurhetjumyndinni Super. Gunn hefur það orð á sér að vera virkilega frumlegur og skapandi leikstjóri en hann á sér stóran aðdáendahóp víðs vegar um heiminn. Í viðtali við nettímaritið Superherohype segir Gunn leikaravalið hafa farið algjörlega eftir hans eigin smekk. „Benicio Del Toro hefur verið einn uppáhaldsleikarinn minn í svo langan tíma að hann var sá fyrsti sem ég hringdi í til þess að bjóða þetta hlutverk,“ segir leikstjórinn en Del Toro fer með hlutverk illmennisins The Collector. Sýnishorn úr myndinni má sjá hér að neðan.
Mest lesið Vók Ofurmenni slaufað Gagnrýni „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Lífið Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron Lífið Mannauðsstjórinn segir einnig upp Lífið „Við viljum alls ekki fá of marga“ Lífið Streitulaust fjölskyldufrí í stað stress og álags Áskorun Litríkur karakter sem var engum líkur Lífið Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina Lífið Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Lífið Bylgjulestin heimsækir Vaglaskóg Lífið samstarf Fleiri fréttir Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Ein heitasta söngkona landsins á lausu Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Gaf eistum kærastans gælunafn „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Cosby Show-stjarna látin Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Heimsfræg lesbía á leið til landsins Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“