Bryndís ekki með Keflavík fyrir áramót Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. september 2014 14:00 Bryndís býr sig undir að setja boltann í körfuna. Vísir/Valli
Körfuknattleikskonan Bryndís Guðmundsdóttir missir að minnsta kosti af fyrri hluta tímabilsins með Keflavík í Domino's deild kvenna, en hún er á leið í heimsreisu ásamt unnusta sínum. Frá þessu var greint á karfan.is. „Ég er búin að vera í körfuboltanum frá því ég man eftir mér og mig langar bara aðeins að upplifa eitthvað nýtt,“ sagði Bryndís í samtali við karfan.is. „Tækifærið gafst núna og ég stökk á það. Svo þarf bara að koma í ljós hvað ég geri þegar ég kem heim.“ Þetta eru vond tíðindi fyrir Keflavíkurliðið, en Bryndís er einn öflugasti leikmaður Domino's deildarinnar. Bryndís, sem er 26 ára, skoraði 16,2 stig og tók 9,5 fráköst að meðaltali í leik á síðasta tímabili. Hún var auk þess með 19 framlagsstig að meðaltali í leik, en aðeins níu leikmenn voru með fleiri slík að meðaltali í leik. Bryndís hefur leikið með Keflavík allan sinn feril, fyrir utan tímabilið 2011-12 þegar hún lék með KR. Hún hefur leikið alla sex landsleiki Íslands á árinu. Bryndís skoraði 7,2 stig og tók 4,5 fráköst að meðaltali í þessum sex leikjum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira