Fimm hundruð á biðlista eftir stuðningi Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 1. september 2014 10:55 Flestir á biðlistunum eru fötluð börn og fjölskyldur þeirra sem óska eftir stuðningsfjölskyldum. visir/vilhelm
Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna stuðnings við fatlað fólk í formi liðveislu eða stuðningsfjölskyldna hefur minnkað um 10-12 prósent á milli ára. Eftirspurnin eftir þjónustunni hefur þó alls ekki minnkað enda eru á fimmta hundrað manns á biðlista, þar á meðal fjöldi barna sem bíða eftir liðveislu eða stuðningsfjölskyldum. Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri þjónustu heim á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, segir biðlistann hafa lengst lítillega frá því í fyrra og vandann felast í of fáum starfsumsóknum. „Við höfum ekki fengið nógu mikið af umsóknum um að gerast stuðningsforeldrar til að mæta eftirspurn.“Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri Þjónustu heim hjá ReykjavíkurborgBerglind segir töluverðar kröfur gerðar til þeirra sem sinna starfinu; viðkomandi þurfi að vera heilsteyptur og með hreint sakavottorð og velja þurfi hvern og einn af kostgæfni enda sé um náið samstarf tveggja aðila að ræða. „Því væri æskilegra að við hefðum fleiri umsóknir til að velja úr. Störf með fötluðu fólki og börnum eru gríðarlega gefandi og skemmtileg og henta vel með námi, ég vona að fólk sjái tækifærið í því.“ María Hildiþórsdóttir, framkvæmdastjóri Sjónarhóls„Það getur verið grundvallaratriði fyrir foreldra að fá stuðningsfjölskyldu,“ segir María Hildiþórsdóttir, framkvæmdastjóri Sjónarhóls, ráðgjafarmiðstöðvar fyrir foreldra barna með sérþarfir. „Sérstaklega þegar umönnun barnsins er mikil. Sum börn með fatlanir sofa til dæmis lítið og foreldrarnir þá líka.“ María segir oft erfiðara að fá stuðningsfjölskyldur og liðveislu fyrir börn eftir því sem þau verða eldri, einnig börn sem eru með hegðunar- og samskiptavanda eða á einhverfurófi. „Einmitt fyrir þessar fjölskyldur getur stuðningur skipt sköpum til að fá nauðsynlega hvíld.“ María bætir við að mikill vilji sé fyrir hendi hjá félagsþjónustunni að útvega stuðning en erfitt virðist vera að finna fólk í störfin og gæti það mögulega tengst launakjörum. Það breyti þó ekki því að mikil þörf sé fyrir þjónustuna og hún sé lagalegur réttur fatlaðra barna.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent Fleiri fréttir Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Sjá meira