Messi einn af þeim sem er óánægður með Luis Enrique Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2014 22:45 Lionel Messi,. Vísir/Getty
Þegar fréttir berast af því að Lionel Messi, einn allra besti fótboltamaður heims, sé óánægður með þig þá þurfa þjálfarar kannski að fara áhyggjur af framtíð sinni hjá Barcelona. Blaðamaður spænska íþróttadagblaðsins Marca hefur heimildir fyrir því að mikill pirringur sé nú á Nývangi eftir töp fyrir Real Madrid og Celta Vigo í síðustu leikjum liðsins í spænsku deildinni. Töpin þýða að Barcelona-liðið er búið að missa toppsætið en liðið fékk einnig á sig fyrstu deildarmörkin á þessu tímabili í þessum tveimur töpum. Luis Enrique tók við liðinu fyrir tímabilið og ef marka má "leka" úr búningsklefa Börsunga þá er Lionel Messi í hópi stjörnuleikmanna liðsins sem eru óánægðir með þjálfarinn sinn. Luis Enrique vill hraðari og beinskeyttari fótbolta í stað tiki-taka leikstílsins sem hefur verið í aðalhlutverki hjá liðinu í mörg sigursæl ár. Fyrir vikið er liðið minna með boltann og tapar honum jafnframt mun oftar. Lionel Messi er samkvæmt fyrrnefndum heimildum einn af þeim sem eru ekki sáttir með þessa breytingu en Luis Enrique fékk líka á sig talsverða gagnrýni vegna ákvarðanna sinna í El Clasico leiknum á móti Real Madrid sem tapaðist 3-1.Lionel Messi.Vísir/Getty
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Fleiri fréttir Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum Sjá meira