Sár og svekktur út í ÍBV Henry Birgir Gunnarsson skrifar 17. júní 2014 07:00 Framtíðin óráðin. Kári Kristján er án félags eftir að ÍBV dró í land með samningstilboð til hans. Kári er að flytja heim til Íslands og líklegt að ófá félögin í efstu deild vilji fá landsliðsmanninn í sínar raðir. fréttablaðið/stefán „
Þetta er súrsæt stund í lífinu hjá mér. Að fá þessi góðu tíðindi með heilsuna og vera svo stunginn í bakið af uppeldisfélaginu. Það er grátlegt,“ segir Kári Kristján Kristjánsson handboltamaður en hann veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Samningur Kára við danska félagið Bjerringbro-Silkeborg er að renna út og hann er búinn að fjárfesta í húsi í heimabæ sínum, Vestmannaeyjum, enda hafði hann hug á að koma heim og spila fyrir uppeldisfélag sitt. Ekkert verður af því þar sem handknattleiksdeild ÍBV ætlar ekki að semja við Kára, sem kom leikmanninum í opna skjöldu enda taldi hann sig hafa komist að samkomulagi við ÍBV um samning.Æxlið ekki nálægt líffærum Kári er staddur úti í Danmörku þessa dagana. Hann fékk þau tíðindi fyrir nokkrum dögum að æxli í baki hans væri góðkynja. Þetta er í annað sinn sem Kári fær æxli í bakið. Og það sem meira er, línumaðurinn sterki þarf ekki að fara í aðgerð. „Þetta æxli er af sama meiði og í fyrra skiptið. Ég taldi það vera alveg klárt að ég færi í aðgerð enda er æxlið nokkuð stórt. Það er aftur á móti ekki nálægt neinum líffærum og er því ekkert að skaða mig,“ segir Kári en læknar segja að hann eigi vel að geta lifað með þessu æxli svo lengi sem það stækkar ekki frekar. Eðlilega verður svo fylgst vel með æxlinu í framhaldinu. „Það er vel þess virði að taka þessa áhættu enda hefur fólk lifað með svona æxli. Mér líður hvorki betur né verr en áður og þetta truflar mig því ekkert sérstaklega. Ég er í rauninni fær í flestan sjó.“Skrítinn fundur Eyjamaðurinn þurfti að bíða í margar vikur eftir niðurstöðu rannsókna og það tók eðlilega á hann að vera í óvissu lengi. „Þetta var ofboðslega skrítinn fundur því ég átti aldrei von á svona fundi. Fyrst fæ ég að vita að æxlið sé góðkynja sem var þvílíkur léttir að heyra. Það var viðbjóður að vera með þetta á bak við eyrað í margar vikur. Að fá svo tíðindin að ekki þyrfti að skera kom mér svo gríðarlega á óvart. Maður labbaði auðvitað himinlifandi út af fundinum.“fréttablaðið/daníelAðeins nokkrum dögum síðar fékk Kári Kristján ekki jafn góð tíðindi. Hann hafði verið í samningaviðræðum við ÍBV síðan í byrjun maí og taldi það mál vera í höfn. Svo reyndist ekki vera. „Viðræðurnar við ÍBV voru komnar á það stig að flugstjórinn var búinn að tilkynna að vélinni yrði lent eftir korter. Þá kom stopp í viðræðurnar sem mér fannst furðulegt, enda voru menn búnir að sættast á stoðir samningsins og í raun bara fínpússning eftir. Ég skildi ekki hvað var eiginlega í gangi og hafði því samband við þá aftur. Þá er mér tilkynnt að þetta gangi ekki upp,“ segir Kári en hann fékk þau tíðindi um nýliðna helgi. „Stjórnin vissi algjörlega um heilsufar mitt og samningurinn átti þá ekki að taka gildi fyrr en ég væri búinn að ná mér góðum af veikindunum. Fyrir mér var þetta allt klárt og ég farinn að undirbúa flutning til Eyja. Þá virðist vera einhver misskilningur innan stjórnar félagsins þar sem menn virðast ekki kannast við allar upplýsingar málsins. Það kom flatt upp á mig því ég er með öll okkar samskipti á tölvupósti. Við vorum búnir að sættast á tölur og bara smáatriði eftir. Þetta kom því algjörlega flatt upp á mig þegar þeir segjast ekki geta gert þetta.“ Eyjamaðurinn er mjög undrandi og svekktur yfir vinnubrögðum handknattleiksdeildarinnar. „Ég er mjög sár og svekktur út í uppeldisfélag mitt og átta mig eiginlega ekki á þessum vinnubrögðum. Ég var mjög spenntur fyrir því að koma heim í mitt félag og taka þátt í þessum skemmtilega uppgangi sem er þar í gangi. Mér finnst ég hafa verið svikinn af uppeldisfélaginu og er svekktur með mína menn.“
Olís-deild karla Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Ólympíuverðlaunin í ár eru verðmætari en nokkru sinni fyrr Sport Fleiri fréttir Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Framkonur flugu upp í þriðja sæti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Sá reynslumesti hættur með landsliðinu Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Strákarnir okkar spila næst æfingaleiki við Svíþjóð Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“