Fá ekki rými í Leifsstöð: Kaupmenn ætla með málið fyrir dómstóla Kjartan Atli Kjartansson skrifar 25. september 2014 16:11 Icewear fékk ekki verslunarrými í Leifsstöð.
Eigendur fyrirtæksins Drífu ehf, sem rekur verslanir sem selja fatnað undir merkinu Icewear, ætla að leita til dómsstóla eftir að kæru fyrirtækisins sem sneri að samkeppni um verslunarrými í Leifsstöð var vísað frá af kærunefnd útboðsmála. „Já, það er ljóst að eigendurnir þurfa að fara með þetta áfram í dómskerfinu,“ segir Daníel Isebarn, lögmaður fyrirtækisins. Eigendur Drífu kærðu samkeppni Isavia í verslunarrými í Leifsstöð til kærunefndar útboðsmála. Kærunefndin úrskurðaði í málinu í síðustu viku. Nefndin vísaði málinu frá vegna þess að hún taldi að ekki væri eiginlegt útboð að ræða, því Isavia væri að leigja verslunarrými út. Nefndin vísaði frá kröfu eigenda Drífu ehf um að forval útboðsins verði stöðvað tímabundið á meðan málið væri tekið fyrir. Kærunefndin tók annars ekki efnislega afstöðu í málinu. Daníel telur að svo virðist sem vanti vettvang í kerfinu þar sem hægt er að kæra sambærileg mál. Vegna þess að enginn slíkur vettvangur fyrirfinnst þurfi eigendur Drífu ehf. fara með málið fyrir dómstóla.Aðalheiður Héðinsdóttir.Leynd hvílir yfir ferlinuAðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs, skrifaði grein í Fréttablaðið í gær þar sem hún gagnrýndi þessa samkeppni. Hún varpaði fram þeirri spurningu hvort að erlendum fyrirtækjum væri fært verslunarými í Leifsstöð á silfurfati. Að mati Aðalheiðar er verslunarrýmið í Leifsstöð eitt það besta hér á landi, því þrjár milljónir manns færu um völlinn á ári hverju. Fyrirtækin Kaffitár og Drífa ehf eru í svipuðum sporum, því hvorugt fyrirtækið fékk tilboð sitt í verslunarrými samþykkt. „Fyrirtæki mínu hefur verið tilkynnt að það sé ekki fyrsti valkostur þegar kemur að samningaviðræðum við Isavia. Ég óskaði eftir upplýsingum um hverjir tóku þátt í samkeppninni, sundurliðun stigagjafar og við hvað var stuðst við stigagjöf,“ skrifaði Aðhalheiður og bætti við. „Svar barst á ensku: Eingöngu stigagjöf Kaffitárs, engar skýringar, enginn samanburður, óskiljanleg samhengislaus stigagjöf. Ég sætti mig við að verða undir í samkeppni, en ekki að leikreglur í svo mikilvægri keppni séu bæði óskýrar og ógegnsæjar. Leynd skapar tortryggni, ýtir undir tilfinningu um að ekki sé farið að settum reglum og eitthvað þurfi að fela. Trúverðugleika skortir í þessari samkeppni. Jafnvel Samtök iðnaðarins mega ekki sjá samkeppnislýsinguna. Hvað þolir ekki dagsbirtu? Eftir samtöl við marga sýnist mér að til standi að gera stóran samning við alþjóðlegt stórfyrirtæki sem rekur tæplega þrjú þúsund verslanir og sérhæfir sig í rekstri í flugstöðvum. Frá þessu á ekki segja fyrr en samningar eru undirritaðir. Þá á ekki að gefa skýringar. Ég tel mikilvægt að fyrirtæki sem stunda rekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar séu íslensk og það sé skammsýni þegar fulltrúar ríkisins halda fram að slíkt skipti engu máli. Alþjóðleg stórfyrirtæki greiða skatta þar sem þeir eru lægstir og það skapar þeim samkeppnisforskot.“Tæknilegt tilboð og fjárhagslegtAðalheiður gagnrýndi einnig að samkeppnisgögn hafi verið á ensku. Í úrskurði kærunefndarinnar kemur fram að samkeppnin hafi verið tvíþætt. Annars vegar það sem kallast „Request for Qualification“ og hinsvegar „Request for Proposal“. Á fyrra stiginu var kannað hvort „þátttakendur uppfylltu þær kröfur um vörur, vörumerki, þekkingu, reynslu og fleira“ sem Isavia setti til þátttöku í samkeppninni. „Þeim sem uppfylltu kröfur var svo boðið að taka þátt í seinna stigi forvalsins, sem nefndist „Request for Proposal“, og skila inn tvöföldu tilboði; annars vegar tæknilegu tilboði og hins vegar fjárhagslegu,“ segir í úrskurði kærunefndar. Isavia mun aðeins hafa tekið fjárhagsleg tilboð fyrirtækja til skoðunnar sem stóðust tæknilega hlutann. Í úrskurðinum kemur fram að Drífa ehf hafi komist í gegnum fyrra stig forvalsins og hafi verið boðið að skila inn tilboðum í seinni hlutanum. Það var gert, en í ágústlok var eigendum fyrirtækisins tilkynnt að fyrirtækið fengi ekki verslunarrými í Leifsstöð. Kæra Drífu ehf „byggir að meginstefnu á því að valforsendur í hinu kærða forvali hafi verið of matskenndar og óljósar, að hæfisskilyrðum og valforsendum hafi verið blandað saman með ólögmætum hætti og að rökstuðningur varnaraðila um val á tilboði hafi verið ófullnægjandi og í andstöðu við ákvæði laga um opinber innkaup.“
Tengdar fréttir Er erlendum fyrirtækjum fært verslunarrými í Leifsstöð á silfurfati? Þjónusta við ferðamenn er ein mikilvægasta atvinnugrein á Íslandi. Um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fara yfir þrjár milljónir farþega og spáð er mikilli fjölgun. Ferðamannastraumurinn er ný auðlind sem skapar miklar tekjur fyrir þjóðarbúið. 24. september 2014 07:00 Vilja opna stað í Leifsstöð Eigendur Joe and the Juice á Íslandi hafa óskað eftir veitingarými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þeir undirbúa sig nú, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, undir samningaviðræður við Isavia sem rekur Keflavíkurflugvöll. Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt og Eygló Björk Kjartansdóttir eru stærstu eigendur fyrirtækisins. 28. ágúst 2014 09:00 Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Sjá meira
Er erlendum fyrirtækjum fært verslunarrými í Leifsstöð á silfurfati? Þjónusta við ferðamenn er ein mikilvægasta atvinnugrein á Íslandi. Um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fara yfir þrjár milljónir farþega og spáð er mikilli fjölgun. Ferðamannastraumurinn er ný auðlind sem skapar miklar tekjur fyrir þjóðarbúið. 24. september 2014 07:00
Vilja opna stað í Leifsstöð Eigendur Joe and the Juice á Íslandi hafa óskað eftir veitingarými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þeir undirbúa sig nú, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, undir samningaviðræður við Isavia sem rekur Keflavíkurflugvöll. Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt og Eygló Björk Kjartansdóttir eru stærstu eigendur fyrirtækisins. 28. ágúst 2014 09:00