Breyting á reglum frekar en undanþágur 18. febrúar 2014 15:54 Skýrsluhöfundar segja að samkvæmt lögum ESB sé hægt að veita varanlegar undanþágur frá reglum sambandsins í aðildarsamningi.
Hagfræðistofnun segir í Evrópuskýrslu sinni að í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum hafi ný aðildarríki hingað til ekki fengið varanlegar undanþágur frá reglum Evrópusambandsins. Hins vegar hafi tekist að fá tímabundnar undanþágur og í sumum tilvikum hafi tekist að fá fram breytta sambandslöggjöf til að takast á við sérstök vandamál. Undanþágur þurfi alltaf að vera skýrar ef þær eigi að haldast. Skýrsluhöfundar segja að samkvæmt lögum ESB sé hægt að veita varanlegar undanþágur frá reglum sambandsins í aðildarsamningi. Sambandið setji hins vegar alltaf fram þá kröfu að nýtt aðildarríki gangi að öllu regluverki þess óbreyttu. Varanlegar undanþágur hafi ekki verið veittar í landbúnaðar- eða sjávarútvegsmálum. Skoðun á aðildarsamningum, sem hafa lagagildi, leiði í ljós að hægt sé að fá tímabundnar undanþágur, mismunandi víðtækar og sem standa mislengi. EFTA-ríkin sem sömdu um aðild 1994 hafi þannig fengið ýmsar undanþágur í landbúnaðarmálum í fimm ár. Í skýrslunni eru hins vegar rakin dæmi um breytingu á reglum ESB í þágu einstakra aðildarríkja. Annars vegar er nefnt ákvæði um svokallaðan heimskautalandbúnað, sem heimilaði Noregi, Svíþjóð og Finnlandi að styrkja sérstaklega til langs tíma landbúnað á harðbýlum svæðum til að tryggja að hann væri stundaður áfram. Annað dæmi sé undanþágur frá fiskveiðistefnu ESB í aðildarsamningi við Möltu, en þar hafi veri mælt fyrir um breytingar á reglugerð um tæknilegar verndarráðstafanir vegna viðhalds fiskistofna í Miðjarðarhafi. „Þær tilhliðranir sem Malta fékk með þessu er því að finna í gerðum Evrópusambandsins. Þeim gerðum getur sambandið auðvitað síðar breytt með þeirri málsmeðferð sem um það gildir innan þess,“ segir í skýrslunni. Loks segir um þetta í skýrslunni: „Í samanteknu máli má því segja að erfitt geti reynst að ná fram varanlegum undanþágum frá reglum sambandsréttar í þeirri merkingu sem hér er lögð í það orðasamband. Það á sérstaklega við á sviði fiskveiða og landbúnaðarmála þar sem stefnan er sameiginleg og Evrópusambandið fer að mestu leyti eitt með lagasetningarvald. Sé keppt að slíku markmiði í aðildarviðræðum verður að kveða á um allar slíkar undanþágur með mjög skýrum hætti ef tryggja á að þær haldi. Eins og áður greinir eru fordæmi fyrir því að unnt að ná fram tímabundnum undanþágum eða jafnvel annarri lagasetningu sambandsins í þágu íslenskra hagsmuna ef þær eru vel rökstuddar. Slíkar undanþágur haldast þó aðeins þann tíma sem þeim er markaður og/eða þar til breyting kann að vera gerð á viðkomandi löggjöf sambandsins. Varast ber að leggja mikið upp úr yfirlýsingum sem fylgja kunna aðildarsamningi a.m.k. að því er lögfræðilegt gildi þeirra varðar.“
Tengdar fréttir Reynt að mæta lýðræðishalla „Að sama skapi hafa áhrif þjóðþinga aðildarríkja Evrópusambandsins farið stöðugt vaxandi,“ segir í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ um aðildarviðræður Íslands og ESB. 18. febrúar 2014 10:27 Erfitt að laga Ísland að fiskveiðistefnunni ESB hefði líklega farið fram á tímasetta áætlun um aðlögun að sameiginlegri sjávarútvegsstefnu. 18. febrúar 2014 14:53 Segir stöðu Íslands gagnvart ESB ljósari en áður Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir lítið af nýjum upplýsingum í Evrópuskýrslu Hagfræðistofnunar. 18. febrúar 2014 13:37 ESB torveldar framkvæmd dauðarefsinga í Bandaríkjunum Í Bandaríkjunum hefur lengi verið skortur á banvænum lyfjum sem notuð eru til að framfylgja dauðadómi. 18. febrúar 2014 11:30 Hægt að bæta upp afnám verndartolla Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir í skýrslu sinni um stöðu aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins að embættismenn ESB hafi ekki séð fram á óleysanleg vandamál í viðræðum um landbúnað. 18. febrúar 2014 14:34 Erfitt að leggja mat á stöðu viðræðna Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir óheppilegt að ekki hafi verið lögð fram samningafstaða í fjórum köflum í samningaviðræðunum við ESB, þegar meta á stöðu viðræðnanna. 18. febrúar 2014 11:01 Landsmenn fá að sjá Evrópuskýrsluna í dag Þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks funduðu hvor í sínu lagi í gærkvöldi vegna Evrópuskýrslunnar sem er að vænta í dag. Ríkisstjórnin mun ræða hana á fundi fyrir hádegi í dag. 18. febrúar 2014 08:14 Segir að ekkert komi fram sem mæli gegn aðildarviðræðum Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir í færslu á Fésbókarsíðu sinni að ekkert komi fram í Evrópuskýrslunni sem mælir gegn því að aðildarviðræðum verði haldið áfram. 18. febrúar 2014 16:01 Dæmi um undanþágur frá sjávarútvegsstefnunni „Hins vegar hafa fengist tímabundnar undanþágur og í sumum tilfellum hefur tekist að fá fram breytingar í löggjöf sambandsins til að eiga við sérstök vandamál," segir í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ um stöðu aðildarviðræðna við ESB. 18. febrúar 2014 10:03 Verðbólga lækkar við inngöngu í ESB Við inngöngu í Evrópusambandið hafa ríki sem glímt hafa við háa verðbólgu náð tökum á henni. Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunnar HÍ um aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins 18. febrúar 2014 11:56 „Samband fullvalda ríkja“ Aðildarríkin hafa síðasta orðið um hvaða vald er framselt stofnunum ESB 18. febrúar 2014 15:11 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Sjá meira
Reynt að mæta lýðræðishalla „Að sama skapi hafa áhrif þjóðþinga aðildarríkja Evrópusambandsins farið stöðugt vaxandi,“ segir í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ um aðildarviðræður Íslands og ESB. 18. febrúar 2014 10:27
Erfitt að laga Ísland að fiskveiðistefnunni ESB hefði líklega farið fram á tímasetta áætlun um aðlögun að sameiginlegri sjávarútvegsstefnu. 18. febrúar 2014 14:53
Segir stöðu Íslands gagnvart ESB ljósari en áður Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir lítið af nýjum upplýsingum í Evrópuskýrslu Hagfræðistofnunar. 18. febrúar 2014 13:37
ESB torveldar framkvæmd dauðarefsinga í Bandaríkjunum Í Bandaríkjunum hefur lengi verið skortur á banvænum lyfjum sem notuð eru til að framfylgja dauðadómi. 18. febrúar 2014 11:30
Hægt að bæta upp afnám verndartolla Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir í skýrslu sinni um stöðu aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins að embættismenn ESB hafi ekki séð fram á óleysanleg vandamál í viðræðum um landbúnað. 18. febrúar 2014 14:34
Erfitt að leggja mat á stöðu viðræðna Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir óheppilegt að ekki hafi verið lögð fram samningafstaða í fjórum köflum í samningaviðræðunum við ESB, þegar meta á stöðu viðræðnanna. 18. febrúar 2014 11:01
Landsmenn fá að sjá Evrópuskýrsluna í dag Þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks funduðu hvor í sínu lagi í gærkvöldi vegna Evrópuskýrslunnar sem er að vænta í dag. Ríkisstjórnin mun ræða hana á fundi fyrir hádegi í dag. 18. febrúar 2014 08:14
Segir að ekkert komi fram sem mæli gegn aðildarviðræðum Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir í færslu á Fésbókarsíðu sinni að ekkert komi fram í Evrópuskýrslunni sem mælir gegn því að aðildarviðræðum verði haldið áfram. 18. febrúar 2014 16:01
Dæmi um undanþágur frá sjávarútvegsstefnunni „Hins vegar hafa fengist tímabundnar undanþágur og í sumum tilfellum hefur tekist að fá fram breytingar í löggjöf sambandsins til að eiga við sérstök vandamál," segir í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ um stöðu aðildarviðræðna við ESB. 18. febrúar 2014 10:03
Verðbólga lækkar við inngöngu í ESB Við inngöngu í Evrópusambandið hafa ríki sem glímt hafa við háa verðbólgu náð tökum á henni. Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunnar HÍ um aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins 18. febrúar 2014 11:56
„Samband fullvalda ríkja“ Aðildarríkin hafa síðasta orðið um hvaða vald er framselt stofnunum ESB 18. febrúar 2014 15:11