Ég á allt mitt undir að læknarnir verði hér Ásdís Valdimarsdóttir skrifar 17. desember 2014 10:04 Ég hef verið að velta fyrir mér hvort ríkisstjórnin sé ekki bara með læknadeiluna alveg á kristaltæru. Hún ætlar ekki að semja við læknana, trúir ekki að þeir muni allir bara fara. Fólk heldur að þeir ætli sér að knýja fram einkavæðingu, ég er ekki viss um það. Ég held bara að þeim sé alveg sama, þeir gera sér enga grein fyrir hversu víðtæk áhrif það hefur ef heilbrigðiskerfið hrynur, þeir eru bara að horfa á læknanna og þeim er bara sama ef þeir hætta, því að ef fólkið á alþingi og þá ríkisstjórnin veikist geta þau alltaf farið til útlanda til læknis, ég veit ekki hvort þessir háu herrar þurfi að leita til siglinganefndar til þess að fá leyfi þótt við almúginn þurfum þess ef eitthvað alvarlegt kemur upp á. Ef enginn læknir er þá er enginn sem skrifar beiðni til þessarar nefndar svo líklega fellur hún niður. Engin lyf verða skrifuð út svo sjúklingar koma til með að deyja hægt og rólega, en það verður mikið að gera hjá útfararþjónustum, fjölskyldur missa börnin sín, fólk missir fyrirtækin sín, því að það er fólk á bak við öll fyrirtæki og fólk veikist; fær allskonar sjúkdóma. Mörg fyrirtæki eru ekki nógu stöndug til þess að geta bara borgað brúsann fyrir sína starfsmenn til útlanda svo þeir komist til læknis. Ekkert gerist af sjálfu sér, öllu er stjórnað af fólki, ennþá allavega. Það er mjög brýnt að semja við lækna, svo er líka mjög brýnt að það komi fram, ég las að Bjarni sagði að læknar væru að biðja um 170.000kr hækkun. Ég las það líka að aðstoðarmenn Sigmundar Davíðs væru 7. Það er ólöglegt, þeir mega vera 2. Mega þeir bara gera hvað sem er, þurfa þeir ekki að fara eftir íslenskum lögum? Ég á allt mitt undir að læknarnir verði hér svo ég vil að launin þeirra verði hækkuð, og af hverju þarf það að hafa áhrif á launaskrið þegar svona mikið er í húfi þegar heildarmyndin er skoðuð? Ef að þjóðin hættir að horfa í naflann á sér og horfa á það sem gerist, horfa fram en ekki afturábak þá kannski sjáið þið, að til þess að halda lífi í íslensku atvinnulífi, þarf að halda lífi í læknum svo þeir geti haldið okkur á lífi, svo þið sem eruð vinnufær og dugleg getið unnið fyrir fyrirtækin í landinu. Annars bara gengur samfélagið ekki upp og Ísland er ónýtt, þetta helst allt í hendur. En kannski ætlar ríkisstjórnin bara að hafa Ísland fyrir sig og sína þess vegna semja þeir ekki, ég segi bara enn og aftur af hverju skiluðu þeir byssunum ? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira