Egyptar hvetja til að lögregla í Ferguson sýni stillingu Atli Ísleifsson skrifar 20. ágúst 2014 12:58 Lögregla í Ferguson handtók 47 manns í mótmælum næturinnar sem voru þó friðsamlegri en mótmæli síðustu daga. Vísir/AFP
Egypsk stjórnvöld hafa hvatt bandarísk yfirvöld til að sýna stillingu í átökum sínum við mótmælendur í bandaríska bænum Ferguson í Missouri-ríki. Fréttaskýrendur segja yfirlýsingu Egypta í meira lagi sérstaka þar sem egypsk stjórnvöld þiggja um 1,5 milljarð Bandaríkjadala í fjárhagsaðstoð frá Bandaríkjunum á ári hverju. Í yfirlýsingu egypskra stjórnvalda segir að þau hafi fylgst grannt með stigmögnun mótmælanna síðustu daga sem hófust eftir að lögreglumaður skaut hinn átján ára Michael Brown til bana þann 9. ágúst síðastliðinn. Yfirlýsing Egypta þykir svipa mjög til yfirlýsingar Baracks Obama Bandaríkjaforseta um óeirðirnar í Kaíró á síðasta ári, en forsetinn er nú undir þrýstingi að finna leiðir til að binda endi á mótmælin í útjaðri St. Louis-borgar. Yfirlýsingin frá utanríkisráðuneyti Egypta var birt fljótlega eftir að Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti lögreglu í Missouri til að hlíta bandarískum og alþjóðlegum reglum í aðgerðum sínum.Í frétt BBC segir að aðstoðarráðherra í ríkisstjórn Írans hafi einnig látið hafa eftir sér að mótmælin væru merki um rasisma á Vesturlöndum. Þá kemur fram á kínverska ríkisfjölmiðlinum Xinhua að þrátt fyrir hlutverk Bandaríkjanna sem alþjóðlegur verndari mannréttinda þá sé „mikið svigrúm til bætingar heima fyrir.“ Því sé betra fyrir Bandaríkin að einbeita sér að því að leysa sín eigin vandamál í stað þess að benda á aðra.
Mest lesið „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Parísarhjól sprettur upp við höfnina Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Fleiri fréttir Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Sjá meira