Rafræn ársskýrsla tilnefnd til verðlauna Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. ágúst 2014 13:52 Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.
Rafræn ársskýrsla Landsvirkjunar hefur verið tilnefnd til verðlauna í hinni alþjóðlegu og virtu Digital Communication Awards keppni, í flokki rafrænna ársskýrslna. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt fyrirtæki er tilnefnt til verðlaunanna. Ársskýrsla Landsvirkjunar er tilnefnd ásamt ársskýrslum fjögurra stórfyrirtækja, en þau eru efnavöru og málningaframleiðandinn Akzo Nobel (með 50.000 starfsmenn í 80 löndum), bifreiðaframleiðandinn Fiat (framleiðandi Ferrari, Maserati, Alfa Romeo og Fiat), breska olíu- og gasfélagið BG Group (starfandi í 25 löndum) og svissneski bankinn Basellandschaftliche Kantonalbank. Digital Communication Awards er alþjóðleg keppni sem verðlaunar það besta úr heimi rafrænnar miðlunar og samskipta. Verðlaun eru veitt í 38 flokkum, allt frá verkefnum á samfélagsmiðlum til stærri rafrænna útgáfna. Leitast er við að skoða alla þætti rafrænna miðlunarverkefna og verðlauna þau sem skarað hafa fram úr í hverjum flokki. Keppnin fer nú fram í fjórða sinn og fjölgar innsendum verkefnum ár frá ári sem voru nær 600. Í dómnefnd sitja yfir 30 sérfræðingar og háskólamenn, þar af 13 prófessorar og kennarar í almannatengslum og samskiptum við virta háskóla í Evrópu. „Tilnefningin er mikil viðurkenning fyrir Landsvirkjun og viðleitni okkar til að að auka skilning og sýnileika á stefnu og starfsemi fyrirtækisins með auknu gegnsæi í rekstrinum, opnum samskiptum og virkri upplýsingamiðlun til hagsmunaaðila og almennings,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, í tilkynningu. Síðasta ársskýrsla Landsvirkjunar var einungis gefin út á rafrænu formi en það er í fyrsta sinn sem sá háttur er hafður á. Í tilkynningunni segir að með þessu vilji Landsvirkjun stuðla að opnum og gagnsæjum samskiptum og huga um leið að umhverfinu með minni pappírsnotkun. Markmiðið er að tryggja betra aðgengi að árlegu uppgjöri fyrirtækisins og gera áhugaverðara og auðveldara fyrir almenning og hagsmunaaðila að kynna sér starfsemi þess. Ársskýrslan var unnin í samstarfi við Skapalón og Jónsson & Le'macks.
Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Viðskipti innlent Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Viðskipti innlent Minnir á flotta tannlæknastofu Samstarf Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Sjá meira