Cleveland tapaði á heimavelli | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. nóvember 2014 07:30 Endurkoman gengur erfiðlega. vísir/getty
LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers töpuðu öðrum leiknum af fjórum á heimavelli í nótt þegar þeir lutu óvænt í gras gegn Denver Nuggets, 106-97. Þetta er aðeins þriðji sigurleikur Denver á leiktíðinni, en Cleveland hefur farið brösulega af stað með þá LeBron, Kyrie Irving og Kevin Love innanborðs. Liðið búið að vinna fimm leiki af níu. Ty Lawson og Arron Afflalo voru stigahæstir gestanna með 24 og 23 stig og þá var miðherjinn Timofey Mozgov öflugur undir körfunni með 14 stig og 11 fráköst. Stjörnuþríeykið hjá Cleveland stóð sig allt vel. LeBron var stigahæstur með 22 stig auk þess sem hann tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar, Kyrie Irving skoraði 20 stig og gaf 8 stoðsendingar og Kevin Love skoraði einnig 20 stig og tók 11 fráköst. Memphis Grizzlies er efst í vesturdeildinni með tíu sigra og eitt tap, en það vann toppslaginn gegn Houston Rockets (9-2) örugglega í nótt, 119-93. Mike Conley, leikstjórnandi Memphis, var stigahæstur liðsins með 19 stig og skotbakvörðurinn Courtney Lee skoraði 15 stig. Liðið fékk mikla hjálp af bekknum en fjórir leikmenn Memphis sem byrjuðu á bekknum skoruðu tíu stig eða meira. Trevor Ariza var stigahæstur hjá Houston með 16 stig og Dwight Howard skoraði 15 stig auk þess sem hann tók 9 fráköst.Úrslit næturinnar: Charlotte Hornets - Dallas Mavericks 80-107 Cleveland Cavaliers - Denver Nuggets 97-106 Boston Celtics - Phoenix Suns 114-118 Brooklyn Nets - Miami Heat 83-95 Detroit Pistons - Orlando Magic 93-107 Memphis Grizzlies - Houston Rockets 119-93 San Antonio Spurs - Philadelphia 76ers 100-75 Portland Trail Blazers - New Orleans Pelicas 102-93 Los Angeles Clippers - Chicago Bulls 89-105Skuggavélin í leik Dallas og Charlotte: Nikola Vucevic bauð upp á tvennu í sigri á Detroit: Al-Farouq Aminu með tröllatroðslu fyrir Dallas: Snotur stoðsending Deron Williams:
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira