Sögulegt skref tekið í Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 23. desember 2014 12:07 Þingmenn fögnuðu eftir að stór meirihluti þingsins samþykkti að fella hlutleysi Úkraínu úr gildi. Vísir/AFP
Úkraína tók í dag sögulegt skref í átt að aðild að NATO, sem er víst til að valda reiði í Moskvu. Þing landsins tók úr gildi hlutleysisreglu landsins sem sett var á 2010 eftir þrýsting frá Rússum. Hlutleysisreglan kom í veg fyrir að Úkraína gæti orðið meðlimur í nokkru hernaðarbandalagi. Forseti Úkraínu, Petro Poroshenko, lofaði að færa landið nær Evrópu þegar hann sigraði kosningar fyrr á árinu. „Barátta Úkraínu um sjálfstæði, stöðugleika og fullveldi hefur orðið að gífurlega mikilvægum þætti í samskiptum okkar við umheiminn,“ hefur AFP fréttaveitan eftir forsetanum. Uppreisnin í Kænugarði í fyrra kom í veg fyrir að Úkraína gengi til liðs við Rússland í nýju bandalagi sem gæti spornað gegn NATO og ESB. Þá hefur Moskva sett hlutleysi Úkraínu sem skilyrði í samningaviðræðum vegna uppreisnarinnar í austurhluta landsins. Minnst 4.700 manns hafa látið lífið í átökunum sem staðið hafa yfir í átta mánuði. „Sæki Úkraína um aðild að NATO mun landið verða að hernaðarlegum andstæðingi Rússlands,“ sagði utanríkisráðherra Rússlands, Dmitry Medvedev í gær. Hann sagði að myndi Úkraína hverfa frá hlutleysi sínu til viðbótar við hertar viðskiptaþvinganir sem samþykktar voru fyrir helgi, hefði það „neikvæðar afleiðingar“. „Og við munum þurfa að bregðast við þeim,“ sagði Medvedev.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira