Sérstakur og Jón Óttar gefa skýrslu vegna hlerana Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. desember 2014 19:10 Jón Óttar Ólafsson Vísir/Pjetur/Daníel
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að kalla skuli sérstakan saksóknara, Ólaf Þór Hauksson, og fimm aðra starfsmenn embættisins til skýrslutöku vegna hlerana í tengslum við Al-Thani málið. Á meðal þeirra er Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi starfsmaður sérstaks saksóknara, sem mjög hefur gagnrýnt starfsaðferðir embættisins, og þá ekki síst hleranirnar. Björn Þorvaldsson, saksóknari, hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Hörður Felix Harðarson, lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrum forstjóra Kaupþings, fór fram á skýrslutökurnar áður en að málið verður tekið til meðferðar í Hæstarétti. Hreiðar Már var í héraði dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi vegna aðkomu sinnar að Al-Thani málinu. Hörður Felix fór jafnframt fram á að tveir rannsakendur til viðbótar myndu gefa skýrslu til að varpa ljósi á það hvers vegna Halldór Bjarkar Lúðvíksson, fyrrverandi starfsmaður fyrirtækjasviðs Kaupþings, fékk stöðu vitnis eftir að hafa verið með stöðu sakbornings. Héraðsdómur féllst ekki á þá kröfu Harðar á þeim forsendum að útskýrt hefði verið skriflega af sérstökum saksóknara hvers vegna réttarstöðu Halldórs var breytt. Hörður segist í samtali við Vísi ekki hafa ákveðið hvort hann kæri úrskurðinn til Hæstaréttar. Lögmaður Ólafs Ólafssonar, Hákon Árnason, fór einnig fram á að fá að kalla nýtt vitni til skýrslutöku, Eggert J. Hilmarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra lögfræðisviðs Kaupþings í Lúxemborg. Héraðsdómur féllst hins vegar ekki á þá kröfu. Ekki liggur fyrir hvort að sá úrskurður verði kærður til Hæstaréttar, en Ólafur var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi í Al-Thani málinu.
Tengdar fréttir Allir sakborningar áfrýja niðurstöðu í Al-Thani máli Allir sakborningar í Al-Thani málinu ætla að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Málsvarnarlaun sem Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings var dæmdur til að greiða verjanda sínum við í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Al-Thani málinu eru hæstu málsvarnarlaun sem dæmd hafa verið í sakamáli hér á landi. 13. desember 2013 11:51 Skýrslutökurnar varpi ljósi á ólögmætar símhleranir Lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, lagði í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fram kröfu þess efnis að skýrslur verði teknar af sjö aðilum sem tengjast Al-Thani málinu svokallaða. Meðal þeirra eru rannsakendur sérstaks saksóknara. 5. nóvember 2014 11:37 Segir ákærðu í Al-Thani málinu saklausa „Þöggunin hættuleg samfélaginu“ 17. janúar 2014 13:56 Saksóknari mótmælti skýrslutökum í Al-Thani málinu Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Ólafur Ólafsson fjárfestir krefjast þess að teknar verði skýrslur af vitnum á ný og tölvupóstssamskipti sérstaks saksóknara opinberuð. 18. nóvember 2014 12:03 Dómur í Al-Thani máli í dag - allt sem þú þarft að vita Dómur verður kveðinn upp í Al-Thani málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag kl. 15. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings og aðrir sakborningar í málinu gætu átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi. 12. desember 2013 08:00 Al-Thani málið: Þungir fangelsisdómar yfir Kaupþingsmönnum Dómur var kveðinn upp í Al-Thani málinu nú rétt í þessu. Sakborningar fengu eftirtalda dóma: Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, fimm ár og hálft ár. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, fimm ár. Ólafur Ólafsson, fjárfestir, 3 og hálft ár. Magnús Guðmundsson, forstjóri Kaupþings í Lúxemborg 3 ár. 12. desember 2013 15:00 Telja dóm í Al Thani-máli vega að stoðum réttarríkisins Lögmannafélag Íslands hefur sent frá sér harðorða ályktun. 7. febrúar 2014 16:18 Al-Thani dómurinn vekur heimsathygli Fréttin um niðurstöður Al-Thani málsins í héraðsdómi Reykjavíkur hefur vakið heimsathygli í dag. 12. desember 2013 17:20 Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira
Allir sakborningar áfrýja niðurstöðu í Al-Thani máli Allir sakborningar í Al-Thani málinu ætla að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Málsvarnarlaun sem Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings var dæmdur til að greiða verjanda sínum við í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Al-Thani málinu eru hæstu málsvarnarlaun sem dæmd hafa verið í sakamáli hér á landi. 13. desember 2013 11:51
Skýrslutökurnar varpi ljósi á ólögmætar símhleranir Lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, lagði í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fram kröfu þess efnis að skýrslur verði teknar af sjö aðilum sem tengjast Al-Thani málinu svokallaða. Meðal þeirra eru rannsakendur sérstaks saksóknara. 5. nóvember 2014 11:37
Saksóknari mótmælti skýrslutökum í Al-Thani málinu Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Ólafur Ólafsson fjárfestir krefjast þess að teknar verði skýrslur af vitnum á ný og tölvupóstssamskipti sérstaks saksóknara opinberuð. 18. nóvember 2014 12:03
Dómur í Al-Thani máli í dag - allt sem þú þarft að vita Dómur verður kveðinn upp í Al-Thani málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag kl. 15. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings og aðrir sakborningar í málinu gætu átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi. 12. desember 2013 08:00
Al-Thani málið: Þungir fangelsisdómar yfir Kaupþingsmönnum Dómur var kveðinn upp í Al-Thani málinu nú rétt í þessu. Sakborningar fengu eftirtalda dóma: Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, fimm ár og hálft ár. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, fimm ár. Ólafur Ólafsson, fjárfestir, 3 og hálft ár. Magnús Guðmundsson, forstjóri Kaupþings í Lúxemborg 3 ár. 12. desember 2013 15:00
Telja dóm í Al Thani-máli vega að stoðum réttarríkisins Lögmannafélag Íslands hefur sent frá sér harðorða ályktun. 7. febrúar 2014 16:18
Al-Thani dómurinn vekur heimsathygli Fréttin um niðurstöður Al-Thani málsins í héraðsdómi Reykjavíkur hefur vakið heimsathygli í dag. 12. desember 2013 17:20