Real Madrid fengið 558 milljónir frá FIFA á einu ári vegna meiðsla leikmanna Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. nóvember 2014 09:00 Luka Modric gengur meiddur af velli á San Siro á sunnudaginn. vísir/getty
Luka Modric, króatíski miðjumaðurinn sem leikur með Real Madrid í spænsku 1. deildinni fótbolta, verður frá keppni næstu þrjá til fjóra mánuðina vegna meiðsla. Modric meiddist í óláta-landsleiknum gegn Ítalíu á San Siro í undankeppni EM á sunnudaginn og mætir ekki aftur til leiks fyrr en á næsta ári. Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, ver aðildarfélög sín fjárhagslega þegar leikmenn meiðast í lengri tíma en 28 daga og borga viðkomandi félagi þá upphæð sem leikmaðurinn þénar á meðan hann er meiddur. Modric fær fjórar milljónir evra í laun á ári (620 milljónir króna) og þar sem verður frá allavega í þrjá mánuði fær Real Madrid 1,6 milljón evra (248 milljónir króna) frá FIFA. Þetta er í annað skiptið á einu ári sem FIFA þarf að punga út háum upphæðum til að greiða vel borguðum leikmönnum Real Madrid. Þjóðverjinn Sami Khedira meiddist í fimm mánuði í landsleik gegn Ítalíu í nóvember í fyrra og var frá keppni í fimm mánuði. FIFA borgaði brúsann sem kostaði sambandið tvær milljónir evra (310 milljónir króna) og hefur Real Madrid því í heildina fengið 3,6 milljónir evra (558 milljónir króna) frá FIFA á einu ári.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Tengdar fréttir Blys og ólæti í jafntefli á Ítalíu | Sjáðu mörkin Það voru mikil læti í Mílanó í dag þar sem Króatar voru í heimsókn. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. 16. nóvember 2014 14:20 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira
Blys og ólæti í jafntefli á Ítalíu | Sjáðu mörkin Það voru mikil læti í Mílanó í dag þar sem Króatar voru í heimsókn. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. 16. nóvember 2014 14:20