Mesti hagnaður í sögu Vodafone Samúel Karl Ólason skrifar 5. nóvember 2014 17:00 Vísir/GVA
Þriðji ársfjórðungur ársins var sá besti í sögu Fjarskipta Hf (Vodafone), en árshlutareikningur félagsins var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins í dag. EBIDTA hagnaður ársfjórðungsins, sem er hagnaður fyrir fjármagnskostnað og afskriftir, fór í fyrsta sinn yfir einn milljarð og var 1.023 milljónir króna. Jókst hann um fjögur prósent, en þessi góða niðurstaða skýrist einkum af markvissum kostnaðaraðgerðum og góðri tekjustýringu, samkvæmt tilkynningu frá Fjarskiptum. Þá jókst hagnaður félagsins eftir skatta um fimmtán prósent og var 476 milljónir króna. Hann hefur aldrei verið hærri á einum ársfjórðungi í sögu félagsins. Framlegð jókst um sjö prósent á tímabilinu. Kostnaðarverð lækkaði um tíu prósent. Tekur drógust saman um tvö prósent og rekstrakostnaður er sex prósentum hærri en árið áður. Eiginfjárhlutfall er nú 53 prósent og hefur aldrei verið sterkara. „Niðurstaða þriðja ársfjórðungs Fjarskipta er ánægjuleg. EBITDA-hagnaður félagsins fór í fyrsta skipti yfir milljarð á ársfjórðungi og hefur aldrei verið meiri í sögu félagsins,“ segir Stefán Sigurðsson forstjóri Fjarskipta. „Góð niðurstaða skýrist helst af markvissum kostnaðaraðgerðum og tekjustýringu. Tekjur voru stöðugar en á sama tíma tókst með markvissum aðgerðum að lækka kostnaðaverð sem bætir framlegð umtalsvert. Hagnaður er einnig að aukast samhliða lægri afskriftum og sterkari efnahag félagsins og hefur sömuleiðis aldrei verið betri.“
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira