Heilsa

Þetta er svo mikil fíkn

Birta Björnsdóttir skrifar
Bobby Breiðholt er einn verðandi meistara í Meistaramánuði, en hann hefur sett sér nokkur markmið fyrir októbermánuð, þar af eitt sem hann kvíðir svolítið fyrir að takast á við.

„Þegar ég settist niður og ætlaði að setja mér markmið kom fyrst þetta helsta, að hætta að borða nammi og svo framvegis. En svo fór ég að hugsa hvort ég ætti mögulega að hætta að eyða svona miklum tíma í símanum mínum,“ segir Bobby, og er þar að tala um vana sem flestir kannast eflaust við. Hvert sem litið er á opinberum stöðum má sjá fólk á öllum aldri niðursokkið í farsíma sína, í hinum ýmsu aðstæðum.

„Já það kannast allir við þetta. Fólk er hætt að geta haldið uppi samræðum hvort við annað án þess að vera stöðugt að tékka á símanum sínum,“ segir Bobby og bætir við að fyrsta daginn ætli hann að kanna hvort hann komist í gegnum klukkutíma án þess að skoða samfélagsmiðla í símanum sínum.

Bobby segist ekki vita um neina aðra sem hætti sér í markmið af þessu tagi.

„Það vill enginn gera þetta, þetta er svo mikil fíkn,“ segir hann.

Við ætlum að fá að fylgjast með baráttu Bobby við farsímann síðar í október og sjá hvernig honum gengur að framfylgja markmiði sínu.

„Ég verð örugglega bara sveittur og skjálfandi einhverstaðar úti í horni,“ segir verðandi meistarinn Bobby Breiðholt.


Tengdar fréttir

Ætlar að njóta augnabliksins

Sylvía Ósk Rodriguez hefur sett sér þrjú markmið í Meistaramánuði. Eitt markmiðanna er nokkurs konar framhald á markmiði sem hún setti sér í Meistaramánuði í fyrra en þá ákvað hún að borða engan sykur í mánuðinum. Hún hefur lést um þrjátíu kíló síðan.

5 bestu snjallsímaforritin fyrir skipulagðara líf

Heilsuvísir er búinn að taka saman 5 forrit sem þú getur hlaðið niður í símann þinn og hjálpa þér við að ná betri árangri í þeim verkefnum og markmiðum sem að þú ætlar að setja þér.

Allir geta orðið meistarar

"Meistaramánuður er í raun lífstílsátak þar sem fólk á öllum aldri skorar sjálft sig á hólm og reynir að bæta sig á einhvern hátt. Allir sem eru tilbúnir að setja sér einhver markmið og fylgja þeim eftir í einn mánuð geta tekið þátt,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson, einn stofnenda Meistaramánuðar.

Allir með í Meistaramánuði

Birta Björnsdóttir hefur að undanförnu sankað að sér hvetjandi og skemmtilegu efni sem tengist meistaramánuðinum á einhvern hátt.

Munaður í Meistaramánuði

Nú er Meistaramánuður og um að gera að setja sér háleit markmið, og auðvitað á það einnig við um ástarlífið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×