Hæstu launin hafa hækkað um 80 milljarða Sveinn Arnarsson skrifar 6. október 2014 07:44 Hæstu launin hafa hækkað um 80 milljarða frá árinu 2010. Vísir/Valli
Heildartekjur launahæstu tíu prósent Íslendinganna hafa hækkað um 80 milljarða frá árinu 2010. Þessi hópur var með yfir 20 milljónir að meðaltali í árslaun í fyrra. 19.324 einstaklingar eru í þessum hópi. Hópurinn fékk greitt ríflega þriðjung allra launa á Íslandi í fyrra og fimmtungur hæst launuðu Íslendinganna var samtals með um 56 prósent allra launatekna í landinu í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands yfir heildaratvinnutekjur Íslendinga sem Fréttablaðið hefur tekið saman. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, telur þetta sláandi. Hagstofan raðar einstaklingum niður í tíu jafnstóra hópa eftir tekjum. Þeir sem minnstar hafa tekjurnar raðast í fyrsta hópinn og svo koll af kolli. Efstu tveir tekjuhóparnir eru með samtals um 479 milljarða í atvinnutekjur á síðasta ári borið saman við 22,2 milljarða heildartekjur neðstu tveggja hópanna. Atvinnutekjur efsta hópsins, hæst launuðu einstaklinganna, hafa hækkað um 26 prósent frá árinu 2010 eða um 80 milljarða króna. Laun allra hinna 90 prósent íslendinga hækkuðu á sama tímabili um 136 milljarða. Hafa ber í huga að fjölmargir í lægstu hópunum eru námsmenn á námslánum og nemar sem búa enn hjá foreldrum sem gæti skekkt töluvert laun neðstu hópanna. Því gefa tekjur þeirra ekki glögga mynd af fjárhagsstöðu hópsins í heild. Þegar allar tekjur eru skoðaðar sést að meðalárstekjur einstaklinga í efsta tekjuhópnum eru rúmar 20 milljónir, tvöfalt hærri en í næsta hóp. Lægsti tekjuhópurinn er með um 330 þúsund krónur í árslaun og næsti fyrir ofan með um 1.26 milljónir í árslaun. Meðalárslaun Íslendinga samkvæmt þessu er því 6.03 milljónir.Vilhjálmur Birgisson, foringi verkalýðsfélags Akraness.Vísir/AntonVilhjálmur Birgisson telur þessar tölur sláandi og vera tilefni til að verkalýðshreyfingin í heild fari vandlega í gegnum þessar tölur. „Þetta eru sláandi tölur og kannski staðfesting á því gífurlega launaskriði sem við höfum verið að sjá hjá þeim launahæstu í landinu. Ég vona að við munum fara vandlega í gegnum þessar tölur en við fyrstu sýn virðist þetta vera ákveðin staðfesting þess sem maður hefur haft tilfinningu fyrir, að misskiptingin sé að aukast aftur í íslensku þjóðfélagi.“ segir Vilhjálmur. Hann bendir á að hlutur Alþýðusambandsins sé nokkur. „Sú láglaunastefna sem Alþýðusambandið hefur verið að reka undanfarin ár er kannski að þrotum komin.“ Fram kemur í frétt Hagstofunnar að eiginfjárstaða allra fjölskyldugerða batnaði á árinu 2013. Þetta á einkum við um einstæða foreldra en staða eiginfjár hjá þeim jókst um tæp 36% árið 2013. Hins vegar þegar skoðaðar eru launatekjur Íslendinga og hlutur þeirra í heildarlaunatekjum kemur í ljós að launatekjur efstu tekjuhópanna hafa hækkað frá hruni á meðan laun annarra hópa hafa staðið í stað eða lækkað sem hlutfall af heildartekjum landsmanna. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir þessar tölur sýna að haga þurfi skattlagningu á Íslandi þannig að hún jafni tekjur landsmanna. „Þessar tölur sýna hversu mikilvægt það er að halda tekjumun í samfélaginu í lágmarki. Um allan heim er að vaxa skilningur á því að skattleggja verður sérstaklega allra hæstu tekjur og allra mestan auð, ef vel á að fara. Misskipting grefur undan jöfnum tækifærum og félagslegu réttlæti,“ segir Árni Páll.Málið var rætt í Bítinu í morgun og hlusta má á umræðuna í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Að sækja um starf eftir uppsögn Atvinnulíf ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Viðskipti erlent Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur Viðskipti innlent Borgar 760 þúsund fyrir flísalögn sem átti að kosta þrjár milljónir Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Sigurður Tómasson til liðs við Origo Viðskipti innlent Hrefna og Unnur til Novum Viðskipti innlent Glæsilegir salir sem henta fyrir fjölbreytta viðburði Samstarf Skelltu þér í sólina í sumar Samstarf Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Samstarf Fleiri fréttir Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið Ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Landsneti Herða eftirlit með kínverskum verslunarrisa í leiftursókn Félag í eigu Quang Lé gjaldþrota Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni „Viðskiptakonan“ sem komst á Bessastaði í annarri tilraun Samruninn hefði haft umtalsverð skaðleg áhrif Svarta sviðsmyndin blasir við ferðaþjónustunni í ár Icelandair hefur flug til Halifax á nýjan leik Tæplega sextíu sagt upp hjá Landvinnslu Þorbjarnar í Grindavík 441 sagt upp í sex hópuppsögnum Sjá meira