Um einföldun á verðskrá er að ræða Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. október 2014 12:06 Farþegar sem keyptu miða fyrir 1. október fá upprunalegu heimildina og þurfa því ekki að breyta neinu í bókun sinni. Vísir/Pjetur
Lággjaldaflugfélagið WOW air hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta sem birtust í gær um að töskugjöld félagsins hefðu hækkað um nýliðin mánaðamót. Í tilkynningu segir að um einföldun á verðskrá sé að ræða og að lagt sé upp með að farþegar greiði aðeins fyrir þá þjónustu sem þeir kjósa að nota hverju sinni. Kemur fram að mörg önnur lággjaldaflugfélög séu með sama rekstrarmódel og hafi ýmist stærðar- eða þyngdartakmörk á handfarangri. Áfram verður ókeypis að hafa með sér handfarangur sem er undir 5 kílóum en ef að farþegi kýs þyngri handfarangur er hægt að greiða fyrir 7 aukakíló. Fyrir flug styttri en 4 tímar kostar aukahandfarangursheimildi 1.999 kr. en ef flugið er lengra en 4 tímar kostar heimildin 2.999 kr. Þetta á þó aðeins við ef bókað er á netinu en sá sem greiðir fyrir handfarangurinn á flugvellinum borgar 3.999 til 8.399 krónur fyrir að taka töskuna með í flugið. Innritaðar töskur munu svo kosta 3.990 kr. fyrir flug sem eru styttri en 4 tímar en fyrir lengri flug kostar taskan 4.990 kr. Sama verð er greitt fyrir tösku númer tvö og þrjú en hingað til hefur kostað meira að innrita þær. Farþegar sem keyptu miða fyrir 1. október fá upprunalegu heimild og geta tekið með sér handfarangur allt að 10 kíló án þess að greiða aukalega fyrir það. Þeir þurfa því ekki að breyta neinu í bókun sinni.
Tengdar fréttir Byrjað að rukka fyrir handfarangur hjá Wow Nú mega farþegar aðeins taka með sér handfarangurstöskur sem vega fimm kíló eða minna, ellegar þarf að greiða fyrir það sérstaklega. 6. október 2014 22:08 Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Falið að gera Reykjavík aðgengilegri Viðskipti innlent Bretland heldur toppeinkunn sinni Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira
Byrjað að rukka fyrir handfarangur hjá Wow Nú mega farþegar aðeins taka með sér handfarangurstöskur sem vega fimm kíló eða minna, ellegar þarf að greiða fyrir það sérstaklega. 6. október 2014 22:08