Aðeins einn farþegi fékk ranga útskýringu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. október 2014 12:44 Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. Vísir/Anton
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að flug Icelandair til Parísar þann 2. ágúst síðastliðinn hafi vissulega verið fellt niður vegna forfalla flugmanns. Félag íslenskra atvinnuflugmanna sendi frá sér yfirlýsingu um liðna helgi þar sem þeir voru ósáttir við að starfsmaður Icelandair hefði tilkynnt farþegum félagsins að flugið hefði verið fellt niður þar sem um verkfallsaðgerðir hefði verið að ræða. „Þetta var þannig að einn farþegi á þessu flugi fékk fyrir misskilning starfsmanns þá skýringu að flugið hefði verið fellt niður vegna verkfallsaðgerða flugmanna. Það hefur verið leiðrétt við viðkomandi einstakling,“ segir Guðjón í skriflegu svari til Vísis. Í tilkynningu FÍA kemur fram að í ljósi þess að óvíst sé hve margir aðrir en þeir sem leituðu til FÍA með ósk um skýringu á niðurfellingunni hafi félagið þurft að bregðast við. Vegna forfalla flugmanns gerði Icelandair árangurslausar tilraunir til að fá flugmenn til að hlaupa í skarðið en án árangurs. Voru sumir tilbúnir að taka verkið að sér fyrir hærri útkallsgreiðslu en vant er. Á það féllst Icelandair ekki. Flugmaður Icelandair sem Vísir ræddi við segir að það hljóti að teljast óeðlilegt að ætlast til þess af flugmönnum að taka að sér næturvaktir á sama taxta og dagvaktir. Í umræddu flugi frá Íslandi til Parísar og til baka mæti flugmenn suður til Keflavíkur seint um kvöld og skili sér svo heim til sín tólf tímum síðar. Í raun fari þrír dagar í verkefnið þar sem þeir þurfa að passa sig að sofa vel daginn fyrir brottför, svo fari heimkomudagurinn sömuleiðis í svefn og menn séu svo ónýtir, því sem næst þunnir, á þriðja degi.
Tengdar fréttir Flugmenn segja skipulagsleysi Icelandair um að kenna Enginn flugmaður var til taks hjá Icelandair þegar forföll komu upp í næturflugi Icelandair til Parísar um Verslunarmannahelgina. 6. október 2014 10:47 Segja Icelandair bera flugmenn röngum sökum "Það er leitt að menn skuli leiðast út á þessa braut og stjórn stéttarfélagsins telur óhjákvæmilegt að opinbera framkomu þjónustueftirlits Icelandair.“ 5. október 2014 10:21 Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Falið að gera Reykjavík aðgengilegri Viðskipti innlent Bretland heldur toppeinkunn sinni Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira
Flugmenn segja skipulagsleysi Icelandair um að kenna Enginn flugmaður var til taks hjá Icelandair þegar forföll komu upp í næturflugi Icelandair til Parísar um Verslunarmannahelgina. 6. október 2014 10:47
Segja Icelandair bera flugmenn röngum sökum "Það er leitt að menn skuli leiðast út á þessa braut og stjórn stéttarfélagsins telur óhjákvæmilegt að opinbera framkomu þjónustueftirlits Icelandair.“ 5. október 2014 10:21