Aron Einar: Við erum stoltir að spila fyrir Cardiff Tómas Þór Þórðarso skrifar 23. september 2014 14:30 Aron Einar Gunnarsson. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, og félagar hans í velska liðinu Cardiff mæta Bournemouth í þriðju umferð enska deildabikarsins í kvöld. Vinni Cardiff leikinn er það þremur skrefum frá Wembley því við taka átta liða úrslitin komist Aron og félagar hans áfram. Cardiff er stjóralaust eftir að Ole Gunnar Solskjær sagði upp störfum, en liðinu stýra Danny Gabbidon og ScottYoung, fyrrverandi leikmenn liðsins. „Scott og Danny vita nákvæmlega hvaða þýðingu það hefur að klæðast Cardiff-treyjunni. Þeir hafa reynt að fá okkur til að spila fyrir stoltið. Æfingarnar hafa verið góðar. Nú þurfum við bara að halda áfram og fara að vinna leiki aftur,“ segir Aron við heimasíðu Cardiff. Cardiff tapaði tveimur leikjum í röð gegn Norwich og Middlesbrough í ensku B-deildinni en náði í gott stig gegn Derby á útivelli í síðustu umferð þar sem Aron Einar skoraði glæsilegt mark með bakfallsspyrnu. „Við verðum að láta lið hafa fyrir því að vinna okkur. Það höfum við ekki verið að gera að undanförnu. Það vita allir að við erum með gott lið og við getum unnið leiki. Það sem við þurfum til að láta allt smella er að menn standi saman og berjist fyrir hvorn annan,“ segir landsliðsfyrirliðinn. „Við erum allir atvinnumenn og vitum hvers er ætlast af okkur. Við erum stoltir að spila fyrir Cardiff og ætlum að þjappa okkur saman. Við höfum gengið í gegnum góða og slæma tíma á undanförnum árum og gert það saman,“ segir Aron Einar Gunnarsson
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Fleiri fréttir „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Sjá meira