MP banki selur MP Pension Fund Baltic Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 23. september 2014 14:09
MP banki hefur selt dótturfélag sitt í Litháen, MP Pension Fund Baltic, til fjárfestingafélagsins Invalda LT AB. Söluverð er 3,3 milljónir evra, sem jafngildir um 508 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. MP Pension Fund Baltic er sérhæft lífeyrissjóðafyrirtæki í Litháen sem býður afurðir á sviði lífeyrissparnaðar þar í landi. MP banki stefnir ekki á frekari vöxt í Litháen, auk þess sem takmörkuð samlegð er í rekstri félaganna. Því var tekin stefnumarkandi ákvörðun um að selja félagið á þessum tímapunkti. Seðlabanki Litháen hefur samþykkt söluna og mun Invalda LT AB taka við eignarhaldi félagsins í dag. Invalda LT AB er eitt af leiðandi fjárfestingarfélögum í Litháen og hefur félagið verið skráð í Kauphöllinni í Vilnius frá árinu 1995. Prime Investment var ráðgjafi MP banka við söluna. Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka segist stoltur af þeim árangri sem náðst hefur frá stofnun félagsins. „Við erum mjög stolt af uppbyggingu MP Pension Fund Baltic og þeim árangri sem náðst hefur frá stofnun félagsins árið 2007. Í dag eru viðskiptavinir um 62.000 talsins og eignir í stýringu um 90 milljónir evra. Grundvöllur fyrir frekari vexti félagsins er því góður. Það hefur verið ánægjulegt að starfa með stjórnendum og starfsmönnum MP Pension Fund Baltic og við óskum nýjum eigendum alls hins besta við frekari uppbyggingu félagsins,“ segir Sigurður.
Mest lesið Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Fleiri fréttir Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Sjá meira