Heilsa

Fljótlegur og sætur líkamsskrúbbur

Mynd/Skjáskot
Ef þú ert að taka þátt í Sykurlausum september þá eru allar líkur á því að sykurinn standi óhreyfður inni í skáp. Sykur getur nýst í margvíslegt annað en mataræði eins og til dæmis líkamsskrúbb.

Hér er uppskrift af dásamlegum líkamsskrúbb sem bæði er fljótlegt að búa til og virkar vel á húðina. Ekki skemmir fyrir að hann sé volgur þegar hann er settur á húðina en það gefur húðinni yl og ást. Að auki verður húðin silkimjúk. 

Það er vel hægt að bæta nokkrum dropum af ilmkjarnaolíum saman við ef að þið eigið hana til nú eða góðum, alvöru vanilludropum. 

Fljótlegur líkamsskrúbbur



2 msk kókosolía

2 msk laxerolía

80 g sykur



Setjið olíurnar saman í skál og hitið í örbylgju eða í potti þar til að kókosolían hefur bráðnað. Hrærið sykrinum saman við olíurnar og notið strax. Best er að byrja á því að skrúbba þurra húðin og skola svo af í sturtu. 


Tengdar fréttir

Sykurlaus september - ertu með?

Við á Heilsuvísi viljum stuðla að bættri heilsu og betra líferni og skorum á þig að taka þátt í Sykurlausum september.

Leiðin að sykurlausri sælu

Ég, Sigga Dögg, er dísæt sykuræta sem ætla að vera svotil sykurlaus í september. Hvað hef ég komið mér útí? Hér er dagbókin mín um meðvitað sykurleysi.








×