Tveir Íslendingar skoruðu hjá landsliðsmarkverðinum Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. ágúst 2014 19:00 Hannes Þór Halldórsson hefur verið frábær í marki botnliðsins. mynd/sandnesulf.no
Viking frá Stafangri gerði í ellefta sinn jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, nú gegn botnliðinu Sandnes Ulf, 2-2, í Íslendingaslag. Þrír Íslendingar; Jón Daði Böðvarsson, Steinþór Freyr Þorsteinsson og Sverrir Ingi Ingason, voru í byrjunarliði Viking og Björn Daníel Sverrisson byrjaði á bekknum.Hannes Þór Halldórsson var að sjálfsögðu í marki heimamanna í Sandnes og þá byrjaði framherjinn Hannes Þ. Sigurðsson leikinn. Eiður Aron Sigurbjörnsson sat allan tímann á bekknum. Randall Brenes kom Sandnes yfir á 39. mínútu, en Steinþór Freyr Þorsteinsson jafnaði metin, 1-1, tveimur mínútum síðar. Aftur skoraði Brenes á 53. mínútu í seinni hálfleik, en þegar tíu mínútur voru til leiksloka fengu gestirnir vítaspyrnu. Björn Daníel, sem var kominn inn á sem varamaður, tók spyrnuna, en lét Hannes Þór verja frá sér. Boltinn barst þó aftur til Björns sem tók frákstaði og skoraði, 2-2. Viking er í sjötta sæti deildarinnar með 32 stig, en Sandnes á botninum með 13 stig, átta stigum frá öruggu sæti þegar níu umferðir eru eftir. Í Svíþjóð vann Helsingborg sigur á Mjällby á útivelli, 2-1. Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði gestanna og spilaði allan leikinn, en Arnór Smárason var ekki í leikmannahópnum. GuðmannÞórisson var heldur ekki í leikmannahópi heimamanna. Helsingborg í áttunda sæti með 26 stig en Mjällby í næstneðsta sæti með 18 stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Sjá meira