Stelpurnar okkar ekki í vandræðum gegn Möltu Kristinn Páll Teitsson skrifar 14. júlí 2014 13:41 Helena var atkvæðamest í íslenska liðinu Vísir/Daníel
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta átti ekki í vandræðum gegn Möltu í fyrsta leik liðanna í Evrópukeppni smáþjóða sem fer fram í Austurríki þessa dagana. Stelpurnar okkar náðu strax undirtökunum í upphafi leiksins og leiddu allt frá fyrstu sekúndum leiksins en glæsilegur kafli í öðrum leikhluta gerði endanlega út um leikinn. Þrátt fyrir að íslenska liðið hefði undirtökin náðu þær ekki að hrista Möltu frá sér í fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta sýndu stelpurnar hinsvegar allar sínar bestu hliðar á báðum endum vallarins og unnu leikhlutann með 22 stigum. Munaði þar helst um varnarleikinn en Malta náði aðeins að setja niður fimm stig í leikhlutanum. Fyrir vikið tók íslenska liðið 27 stiga forskot inn í hálfleikinn og gerði endanlega út um leikinn í þriðja leikhluta sem vannst 17-10 og var munurinn kominn upp í 34 stig. Fjórði og síðasti leikhlutinn var því aðeins formsatriði fyrir stelpurnar okkar sem sigldu sigrinum örugglega heim. Fór svo að leiknum lauk með 85-46 sigri Íslands en stelpurnar mæta Gíbraltar á morgun. Helena Sverrisdóttir fór fyrir íslenska liðinu með sextán stig og níu fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir setti niður tólf stig og þá bætti Pálína Gunnarsdóttir við tíu stigum.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG Fótbolti Gunnlaugur Árni komst áfram á U.S. Amateur Golf Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð Sjá meira