Golf

Tiger fékk fimm fugla á seinni níu | Þrír Ítalir á meðal efstu manna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tiger Woods rétti úr kútnum.
Tiger Woods rétti úr kútnum. vísir/getty
Tiger Woods hefur lokið leik á fyrsta hring á opna breska meistaramótinu í golfi, en hann spilaði á þremur höggum undir pari í dag og er jafn fjórum öðrum kylfingum í áttunda sæti sem stendur.

Hann byrjaði illa í dag og fékk tvo skolla á fyrstu tveimur holunum. Hann fékk svo fugl á fimmtu holu og var einu höggi yfir pari eftir fyrri níu í dag.

Hlutirnir fóru að ganga betur á seinni níu, en þar fékk Tiger þrjá fugla í röð á 11., 12. og 13. holu og var kominn tveimur höggum undir par. Því fylgdi þó annar skolli á 14. holu.

En Tiger fékk svo tvo fugla til viðbótar á 15. og 16. holu og paraði svo síðustu tvær. Samtals lék hann á 69 höggum eða þremur höggum undir pari vallarins.

Í öðru höggi sínu á 18. braut, sem er par fimm, þurfti hann þrívegis að hætta við vegna ljósmyndara sem tók myndir í hvert sinn sem Tiger gerði sig líklegan til að slá. Það líkaði honum illa.

Höggið rataði á endanum í erfiða glompu við 18. flötina en Tiger lyfti sér upp úr henni og bjargaði pari.

Matteo Manasero er að spila vel.vísir/getty
Þrír Ítalir eru á meðal efstu manna en MatteoManassero spilaði fyrsta hringinn á fimm höggum undir pari. Hann fékk sjö fugla og tvo skolla á fyrsta hring.

Þá eru Molinari-bræður, þeir Edoardo og Francesco, báðir á fjórum höggum undir pari eftir fyrsta hring líkt og Bandaríkjamaðurinn BrooksKoepka.

Rory McIlroy er í miklu stuði, en hann er á sex höggum undir pari eftir 16 holur.

Opna breska meistaramótið hófst í dag og verða allir keppnisdagarnir fjórir í beinni útsendingu á Golfstöðinni.

Molinari-bræður ræða saman.vísir/getty

Tengdar fréttir

Nær Tiger Woods að endurtaka leikinn á Hoylake?

Nær Tiger Woods að endurtaka leikinn frá því árið 2006 þegar hann valtaði yfir keppinauta sína á Hoylake-vellinum sem spilað er á í ár eða lengist biðin eftir næsta risatitli?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×