Golf

Tiger rétti úr kútnum eftir erfiða byrjun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Tiger Woods byrjaði skelfilega á Opna breska meistaramótinu í golfi í morgun.

Hann fékk skolla á fyrstu tveimur holunum en mótið nú er það annað sem hann keppir í síðan hann gekkst undir agðerð á baki fyrir fjórum mánuðum síðan.

Tiger lenti í sandglompu á fyrstu holu og missti síðan tveggja metra pútt fyrir pari á annarri. Hann hélt þó haus eftir það og náði fugli eftir gott innáhögg á fimmtu holu, sem er par 5.

Robert Karlsson og Marc Leishmann eru efstir af þeim sem hafa lokið leik í dag en þeir komu báðir í hús á 69 höggum eða þremur undir pari. Norður-Írinn Rory McIlroy hefur einnig byrjað vel og er á þremur undir eftir átta holur.

Opna breska meistaramótið hófst í dag og verða allir keppnisdagarnir fjórir í beinni útsendingu á Golfstöðinni.


Tengdar fréttir

Nær Tiger Woods að endurtaka leikinn á Hoylake?

Nær Tiger Woods að endurtaka leikinn frá því árið 2006 þegar hann valtaði yfir keppinauta sína á Hoylake-vellinum sem spilað er á í ár eða lengist biðin eftir næsta risatitli?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×