Heilsa

Ekki er allt vænt sem er grænt

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Ekki er allt vænt sem er grænt
Ekki er allt vænt sem er grænt

Það er mikilvægt að borða nóg af grænu grænmeti, eins og flestir vita. Margir fá sér græna djúsa til þess að innleiða grænmeti í mataræði sitt – en ekki er allt vænt sem er grænt. Oft getur leynst mikill falinn sykur í aðkeyptum grænum djúsum.

Mælt er með því að takmarka ávexti og önnur sætindi í djúsnum, en þess í stað reyna að hafa meira af grænmeti í honum.

Hér fylgir uppskrift af einum vel grænum:

1 bolli kókosvatn

1 bolli möndlumjólk

1 bolli spínat

1 bolli grænkál

1/2 lárpera

1/2 tsk spirulina duft

1/2 tsk chlorella duft

1/2 tsk maca duft

1/2 tsk kanill

1/4 tsk himalaya salt

1/2 lime kreist yfir

1/2 bolli ísmolar

Blandið öllum hráefnunum saman í blandara á hæstu stillingu og njótið!

Svo er auðvitað ekkert því til fyrirstöðu að fá sér einn ögn sætari á tyllidögum og blanda þá ávöxtum, berjum og hnetusmjöri saman við grænmetið.








×