Jón Daði, Björn Daníel og Indriði skoruðu allir í bikarsigri Viking Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júní 2014 18:56 Björn Daníel Sverrisson. Vísir/Stefán
Íslendingaliðin Viking, Sarpsborg 08 og Molde unnu öll sína leiki í sextán liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í kvöld en Vålerenga og Start eru úr leik. Jón Daði Böðvarsson, Björn Daníel Sverrisson og Indriði Sigurðsson skoruðu allir fyrir Viking í 4-1 heimasigri á Sogndal í kvöld en sex íslenskir leikmenn voru í byrjunarliðum liðanna, Jón Daði, Björn Daníel, Indriði, Steinþór Freyr Þorsteinsson og Sverrir Ingi Ingason hjá Viking og Hjörtur Logi Valgarðsson hjá Sogndal. Björn Daníel kom Viking í 2-0 á 58. mínútu og Jón Daði skoraði þriðja mark liðsins á 77. mínútu eftir að Sogndal minnkaði muninn. Indriði skoraði fjórða og síðasta markið á lokamínútunni. Matthías Vilhjálmsson skoraði fyrir Start en það dugði ekki til í 2-3 tapi í Íslendingaslag á móti Sarpsborg 08. Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliði Sarpsborg 08 og Þórarinn Ingi Valdimarsson kom inná sem varamaður á 16. mínútu. Matthías og Guðmundur Kristjánsson voru í byrjunarliði Start. Viðar Örn Kjartansson og félagar í Vålerenga eru úr leik eftir 2-3 tap á móti Odd en sigurmark Odd kom úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Odd komst í 2-0 en Vålerenga jafnaði metin í 2-2 þegar tólf mínútur voru eftir. Viðar Örn náði ekki að skora fyrir Vålerenga í kvöld. Björn Bergmann Sigurðarson var ekki með Molde sem vann 4-0 heimasigur á Mjöndalen.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira