Veiði hefst á föstudaginn í Ytri Rangá Karl Lúðvíksson skrifar 18. júní 2014 20:26 Mynd: www.veida.is
Veiði hefst í Ytri Rangá á föstudaginn og það er mikil spenna meðal veiðimanna og leigutaka enda hafa fystu laxarnir þegar sýnt sig í ánni. Ytri Rangá hefur um árabil verið ein af aflahæstu laxveiðiánum á landinu og líka ein sú vinsælasta enda hefur veiðin afskaplega góð. Nýir leigutakar tóku við ánni og er þetta fyrsta sumarið sem þeir eru með hana. Þær breytingar hafa verið gerðar að stöngum var fækkað, verðið lækkað og veiðistaðir sem áður voru skilgreindir sem sérsvæði verða framvegis frísvæði. Þetta minnkar veiðiálagið og gefur þeim sem dragast á "róleg" svæði tækifæri til að spreyta sig annars staðar. Laxar hafa þegar sést í Djúpós og Borg sem er ekkert sem kemur mönnum á óvart enda báðir veiðistaðirnir mjög gjöfulir. Djúpós heldur fiski meira og minna allt sumarið en Borg hefur yfirleitt verið talin meiri göngustaður en hann getur gefið mönnum ótrúlega veiði ef menn eru þar þegar göngurnar fara í gegn. Þeir sem vilja skoða lausa daga geta kíkt á síðuna hjá Veiða.is en þar er yfirlit yfir lausa daga og verð.
Stangveiði Mest lesið Aðalfundur SVFR og kosning til stjórnar Veiði Síðustu dagarnir í vatnaveiðinni framundan Veiði Fréttir úr Fossálum Veiði Hollið með 71 lax í Hofsá Veiði Selá er við hundrað laxa markið Veiði Stórir birtingar ennþá að veiðast í Baugstaðarós Veiði Erindi um stíflur og áhrif þeirra Veiði Þær eru bestar léttklæddar Veiði Flott veiði og stórir fiskar í Varmá Veiði Rigningar næstu daga kæta laxveiðimenn Veiði