Erlent

Leitin að Madeleine: Stórt svæði afgirt nálægt hótelinu

Madeleine McCann hvarf úr hótelberbergi foreldra sinna árið 2007, þá þriggja ára gömul og hefur hennar verið leitað ákaft síðan.
Madeleine McCann hvarf úr hótelberbergi foreldra sinna árið 2007, þá þriggja ára gömul og hefur hennar verið leitað ákaft síðan. Vísir/AP
Lögreglumenn sem rannsaka hvarf Madeleine McCann, litlu stúlkunnar sem hvarf af hótelherbergi fjölskyldu sinnar árið 2007 í Praia de Luz í Portúgal, hafa í morgun girt af stórt svæði kjarrlendis nálægt hótelinu.

Aukinn kraftur hefur undanfarið verið settur í rannsóknina og eru breskir lögreglumenn nú þáttakendur í henni. Rannsakendur fara nú um svæðið og meta hvort tilefni sé til að hefja þar uppgröft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×