Hátt í 500 starfsmenn á Secret Solstice 24. maí 2014 12:36
Um fimm hundruð manns munu starfa á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sem verður haldin í Laugardalnum 20. til 22. júní, að sögn Carmen Jóhannsdóttur, aðstoðarframleiðslustjóra hátíðarinnar. Hún var í viðtali í fyrsta þættinum af Secret Solstice: Upphitun, sem sýndur er hér á Vísi. Hún segir hátíðina hafa veirð auglýsta út um alla Evrópu. „Það er búið að setja mikla pressu á okkur. Við erum komin á topp 10 lista hjá Times, BBC og Resident Advisor, þannig að það er allt að gerast.“ Carmen segir að enskir aðilar sem sérhæfi sig í uppsetningu útihátíða, og komi að uppsetningu Secret Solstice, telji Laugardalinn vera klæðskerasniðinn til þess að halda svona hátíðir. „Þeim finnst í raun ótrúlegt að svona hátíð hafi ekki verið haldin áður hérna,“ útskýrir Carmen. Í þættinum fer Carmen yfir hvar helstu sviðin verða staðsett og fer yfir breytingar sem gerðar verða á Skautahöll Reykjavíkur, sem verður breytt í svokallað Rave og mun taka þrjú þúsund gesti. Mörg svið verða á hátíðinni og fjöldi matsölustaða mun selja svöngum gestum mat, eins og Carmen útskýrir. Í fyrsta þættinum af Secret Solstice: Upphitun er einnig rætt við Rögnu Kjartansdóttur, eða Cell7. Hún haf út rappplötu fyrir síðustu jól sem fékk mjög góða dóma. Ragna segist hlakka mikið til að spila á hátíðinni. Hljómsveitin Fox Train Safari kemur líka í heimsókn. Meðlimir hennar segjast ætla að taka gesti hátíðarinnar í náttúrulegt ferðalag. Hér að ofan má sjá fyrsta þáttinn af Secret Solstice: Upphitun.
Mest lesið Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Lífið Fyrsti takóstaðurinn sem fær Michelin-stjörnu Matur „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Sjá meira