Skoðun

Eflum félagsþjónustu í Garðabæ

Sigríður Finnbjörnsdóttir skrifar
Síðustu vikur hefur SÁÁ staðið fyrir árlegri álfasölu sinni en í ár er markmiðið að gera samtökunum kleift að standa undir þeirri meðferðarþjónustu sem þau veita ungum fíklum og börnum áfengis- og vímuefnasjúklinga. Þeir eru fáir Íslendingarnir sem þekkja ekki til þess starfs sem SÁÁ hefur lagt til samfélagsins. Margt fólk hefur farið út af braut og þurft á aðstoð að halda. Eftir að fólk hefur lent í slíkum hremmingum er mikilvægt að nærsamfélagið taki vel á móti því. Þar kemur að hlutverki okkar sem bæjarfélags að styðja við það fólk sem er að reyna að komast á rétta braut. Velferð þeirra er velferð okkar sem bæjarfélags.

Hjá núverandi meirihluta bæjarstjórnar Garðabæjar hefur gætt vissrar tilhneigingar að vísa ýmsum félagslegum málum frá bænum. Að mínu mati ber okkur skylda til að hjálpa því fólki sem hér býr og fer út af leið í lífshlaupinu. Það borgar sig á endanum að hjálpa og standa vörð um samhjálp okkar Garðbæinga með því að huga betur að velferðarmálum.

Þjónusta við eldri borgara

Við sem samfélag höfum það að markmiði að gera eldra fólki kleift að lifa eðlilegu heimilislífi eins lengi og kostur  er og að þeim sé tryggð þjónusta þegar hennar er þörf í samræmi við þarfir hvers og eins.

Í Garðabæ eru til eldri borgarar sem þurfa á margvíslegri þjónustu að halda. Til að auðvelda þeim að sækja þjónustu viljum við að þjónustan sem fyrir er verði efld og að hún verði einnig betur samræmd. Markmiðið með þessu væri að fólk gæti leitað á einn stað eftir svörum og þjónustu sem það þarf á að halda.

Einnig viljum við bjóða eldri borgurum upp á sérstök þjónustukort. Á þjónustukortinu verður ákveðin inneign sem hver og einn eldri borgari getur notað í eigin þágu til dæmis í hreingerningarþjónustu, garðhreinsun eða til að stunda tómstundir og hreyfingu.

Eldri borgarar í Garðabæ hafa lagt sitt á vogarskálarnar til að byggja upp góðan bæ, þeir hafa flestir borgað lengst og mest til bæjarins. Þjónustukortið er góð leið til að sína okkar eldra fólki virðingu og þakklæti.

Við hjá FÓLKINU- í bænum munum beita okkur fyrir bættri þjónustu fyrir þá Garðbæinga sem á þurfa að halda og þannig gerum við góðan bæ enn betri.




Skoðun

Sjá meira


×