Ráðstöfun séreignarsparnaðar gagnast ekki öllum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. maí 2014 12:08 Tryggvi Þór Herbertsson, mælir gegn því að fólk sem stendur illa fjárhagslega sæki um ráðstöfun séreignarsparnaðar.
Opnað var fyrir umsóknir um að ráðstöfun séreignarsparnaðar til niðurgreiðslu húsnæðislána í dag. Nokkur hundruð manns hafa þegar sótt um, en það er gert með því að fara inn á vefsíðuna Leiðrétting.is.Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnisstjóri um framkvæmd höfuðstólslækkunar íbúðalána, segir ferlið þó örlítið flóknara en ferlið sem notast er við til að sækja um niðurfærslu á húsnæðislánum, en hægt er að notast við kynningarmyndbönd og leiðbeiningar á vefsíðunni. Tryggvi segir opnun ferlisins ganga vonum framar. „Það er mikil traffík á síðunni okkar en einnig á banka- og fjármálakerfinu. Fólk er að kanna hvort það sé með séreignarsparnað og jafnframt að óska eftir slíkum,“ segir Tryggvi. Hann segir þó að þessi leið gagnist ekki öllum. „Þeir sem standa tæpt fjárhagslega og eiga hættu á að fara í gjaldþrot, til dæmis þeir sem búa við mikla áhættu, atvinnurekendur með sjálfskuldaábyrgðir og annað slíkt, við ráðleggjum þeim ekki að sækja um. Ef fólk fer í gjaldþrot þá missir það allt sem það hefur lagt í þetta.“ Alþingi samþykkti lög sem leyfa fólki að nota séreignarsparnað sinn næstu þrjú árin, frá 1. júlí, til að greiða inn á höfuðstól lána. Þeir sem ekki eiga húsnæði mega nýta sparnað sinn næstu fimm ár til að greiða inn á húsnæðislán. Hámarksfjárhæð á ári er 500 þúsund krónur, en hjón eða samskattað fólk getur nýtt 750 þúsund krónur á ári.
Mest lesið Ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Ratcliffe boðar nýja laxastiga og miklar hrognasleppingar Viðskipti innlent Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Gæti átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira