Formúla 1

Hakkinen: Alonso með algjöra yfirburði á Raikkonen

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Raikkonen hefur ekki átt óskabyrjun á tímabilinu.
Raikkonen hefur ekki átt óskabyrjun á tímabilinu. Vísir/Getty
Mika Hakkinen telur að Kimi Raikkonen verði að ná liðsfélaga sínum, Fernando Alonso. Vilji hann halda sæti sínu hjá Ferrari. Alonso er með 41 stig en Raikkonen 11.

„Kimi á við vandamál að stríða og þau þarf að leysa,“ sagði Hakkinen. „Í augnablikinu er Alonso með algjöra yfirburði - munurinn er ekki lítill,“ hélt Hakkinen áfram.

„Nú þegar fjórum keppnum er lokið myndi ég hafa talið að hann væri búinn að koma sér fyrir. Bíllinn hans er ekki svo afleiddur að hann geti ekkert gert varðandi Alonso,“ sagði Hakkinen.

Það er alkunna að Raikkonen líkar ekki við ökuhermana sem ökumenn og lið nota til æfinga. Hakkinen hefur hvatt Raikkonen til að nota pásuna á milli keppanna í Kína og á Spáni vel.

Hakkinen telur að það borgi sig ekki að veita Raikkonen of mikil ráð. Raikkonen hefur gríðarlega reynslu, enda fyrrum heimsmeistari ökumanna, með Ferrari. Hakkinen telur að landi hans viti hvað þurfi að bæta og vinni að því hörðum höndum.


Tengdar fréttir

Tveir titlar ekki nóg fyrir Alonso

Fernando Alonso segir að hann verði ekki áægður ef hann verður enn bara með tvo heimsmeistaratitla þegar hann hættir í Formúlu eitt.

Raikkonen: Við erum ekki heimskir

Ferrari byrjar nýtt tímabil í Formúlu 1 ekki vel en þar á bæ vinna menn hörðum höndum að því að gera bílinn samkeppnishæfan fyrir næstu keppnir.

Bílskúrinn: Hvað er að frétta frá Kína?

Lewis Hamilton á Mercedes vann Kínakappasturinn örugglega. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar, Ferrari maðurinn Fernando Alonso varð þriðji. Hvað gerðist og hvað er helst að frétta? Við förum yfir málin í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Alonso veit hvað Ferrari þarf að bæta

Spánverjinn Fernando Alonso hjá Ferrari segir að liðið viti hvaða atriði þarfnast lagfæringa. Ferrari stefnir á að geta keppt við bestu bílana fljótlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×