Harmageddon

Notuðu Twitter aðgang Mike Tyson til að kynna nýja plötu.

Þeir Patrick Carney og Dan Auerbach skipa The Black Keys
Þeir Patrick Carney og Dan Auerbach skipa The Black Keys
Hljómsveitin The Black Keys sendi frá sér tilkynningu nú um helgina þar sem fram kom að ný plata frá hljómsveitinni er væntanleg þann 13. maí og hefur platan fengið nafnið Turn Blue. 

Fóru þeir nokkuð óhefðbundna leið til að kynna plötuna þar sem þeir fengu engan annan en Mike Tyson til að setja tilkynningu um útgáfuna á Twitter aðgang sinn. 

Tyson sem er með rúmlega 4 milljónir fylgjenda á Twitter aðgangi sínum setti inn færslu sem sagði einfaldlega Turn Blue og meðfylgjandi var slóð á myndband þar sem allar helstu upplýsingar um plötuna komu fram. 








×