Vilt þú komast á Orgy stefnumót? Orri Freyr Rúnarsson skrifar 17. október 2013 17:28 Hljómsveitin Orgy
Ef einhverjir íslenskir aðdáendur Orgy sakna þess að heyra nýtt efni með hljómsveitinni geta þeir nú seilst í vasa sína og styrkt hljómsveitina í upptökum á nýrri EP plötu. Hljómsveitin hefur nefnilega neyðst til að leita á náðir aðdáenda sinna með hópfjáröflun. Á vefnum Indiegogo biðla þeir til almennings að kaupa mismunandi pakka til að fjármagna upptökur á nýrri plötu. Á meðal þess sem aðdáendur geta keypt er stefnumót með meðlimi Orgy að eigin vali fyrir aðeins $1000 eða um 120.000kr. Allur kostnaður við stefnumótið og ferðakostnaður er þó ekki innifalinn í verðinu. Efnameiri aðdáendur geta þó einnig keypt risapakka fyrir $20.000, eða um 2,4 milljónir króna en þeim pakka fylgir árituð plaköt, einkatónleika auk þess að fá plötuna tileinkaða sér. Orgy stefndi á að safna $100.000 en nú þegar að einungis átta dagar eru til stefnu hafa þeir aðeins tryggt sér rúmelga $7000. Hljómsveitin Orgy skaust upp á stjörnuhimininn árið 1998 þegar ábreiða þeirra af laginu „Blue Monday“ sló í gegn og í kjölfarið seldist plata þeirra, „Candyass“, gríðarlega vel. Síðan þá hefur leiðin hisnvegar legið niður á við hjá Orgy og í dag er söngvari sveitarinnar eini upprunarlegi meðlimurinn. Ástæðan fyrir þessari hnignun hljómsveitarinnar er þó að sjálfsögðu ekki lélegum gæðum þeirra að kenna, heldur einfaldlega að tónlistariðnaðurinn hafi breyst og ólöglegt niðurhald aukist, að minnsta kosti að þeirra mati. Hafi lesendur áhuga á að styrka Orgy má gera það hér og einnig má horfa á myndband frá sveitinni þar sem þeir kynna verkefnið.https://www.indiegogo.com/projects/orgy-music
Harmageddon Mest lesið 20 ár síðan að Kurt Cobain dó - Allt sem þú þarf að vita um Nirvana Harmageddon Kontinuum á toppi Pepsi Max lista X977 Harmageddon Hvetur fólk til að minnast Hauks með því að mæta í héraðsdóm Harmageddon Sykur þróar stílinn á nýrri plötu Harmageddon Segir þögult verðsamráð ríkja á matvörumarkaði Harmageddon Oasis að koma saman að nýju? Harmageddon Trommari Slipknot segist ekki hafa hætt í hljómsveitinni Harmageddon Gítarleikari INXS missti puttann í slysi Harmageddon Kostulegt samtal Frosta við Nígeríusvindlara sem lofar honum milljónum króna Harmageddon "Ríkisstjórnin á að segja af sér“ Harmageddon